Auglýsingatekjur voru 9,8 milljarðar í fyrra 10. desember 2009 04:00 Tölur Hagstofunnar sýna 15 prósenta rýrnun auglýsingakökunnar sem fjölmiðlar skipta á milli sín, milli áranna 2007 og 2008. Fréttablaðið/Anton
Samanlagðar tekjur fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga, ásamt tekjum af kostun, námu ríflega 9,8 milljörðum króna árið 2008, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær. Fram kemur að auglýsingatekjur miðlanna hafi dregist saman um fimm prósent milli ára. „Reiknað á meðalverðlagi ársins 2008 rýrnuðu auglýsingatekjurnar um 15 af hundraði," segir Hagstofan. Af þeim flokkum fjölmiðla sem tölur um auglýsingatekjur ná til, féll stærstur hluti tekna til fréttablaða (dagblaða og vikublaða), eða 58 prósent, en ríflega fjórðungur til sjónvarps. Hlutfall útvarps af auglýsingatekjum nam 14 prósentum. „Restina ráku kvikmyndahús, mynddiskar og myndbönd með samanlagt laust innan við tvo af hundraði teknanna," segir í tilkynningu Hagstofunnar. Skipting auglýsingatekna milli miðla er að mestu óbreytt síðustu ár. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, segir að í ljósi talna um hlutfallsskiptingu fjölmiðla á auglýsingamarkaði sé athyglisvert að velta fyrir sér stöðunni á sjónvarpsmarkaði. „Hún er gríðarlega ójöfn með þennan risa inni á markaðnum sem fær til sín einhverjar 3.600 milljónir af skattfé okkar til að keppa við einkafyrirtækin," segir hún og staldrar við tölu í nýjum ársreikningi Ríkisútvarpsins (RÚV) um 336 milljóna króna sölukostnað. „Ég lít svo á að þar sé herkostnaður sem ríkið leggur út í til að keppa á þessum markaði," segir hún og bendir á að Landlæknisembættið fái úthlutað svipaðri tölu á fjárlögum 2010. Sigríður kveðst annars ánægð með gang mála hjá Skjánum frá því ákveðið var fyrir mánuði að breyta Skjá einum í áskriftarstöð. „Við erum á næstu dögum að fara að verðlauna áskrifanda númer 20 þúsund," segir hún, en í þeirri tölu er vísað til virkra áskrifenda. Þorsteinn Þorsteinsson, markaðsstjóri RÚV, segir meintan „herkostnað" hins vegar fremur lítinn í samanburði við annað, innan við 10 prósent af auglýsingatekjum. Með í sölukostnaði sé allur dagskrárkynningarkostnaður, fjölmiðlakannanir, allar afskriftir, sem í fyrra hafi numið 40 milljónum króna, auk afnotadeildar, sem hafi verið starfandi á þessum tíma. „Minnihlutinn af þessu er beinn sölukostnaður," segir hann og bætir við að á þessu ári hafi afföll af auglýsingatekjum aukist verulega, en þær falli undir afskriftirnar. Þorsteinn segir skekkja nýbirtan reikning að reikningsárið byrji í september. „En við erum búin að vera í samdrætti alveg frá því í janúar." olikr@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira