Hafa leigt frá sér 2.306 tonn af kvóta 21. október 2009 06:00
Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði hefur leigt frá sér 2.306 tonn af þeim 3.241 þorskígildistonni kvóta af bolfiski sem fyrirtækið fékk til ráðstöfunar á fiskveiðiárinu, sem hófst 1. september 2009. Miðað við meðalverð á kvótamarkaði hinn 24. september síðastliðinn er heildarverðmæti kvóta sem fyrirtækið hefur leigt frá sér undanfarnar sjö vikur um 440 milljónir króna. Skipin tvö sem Eskja gerir út og skráð eru fyrir bolfiskkvótanum eru nóta- og togveiðiskip. Þau stunda ekki veiðar á bolfiski, eins og þorski, ýsu og ufsa, heldur aðeins á uppsjávarfiski, eins og síld, kolmunna og loðnu. „Við höfum verið að skipta aflaheimildum í bolfiski yfir í uppsjávarheimildir og höfum auk þess verið í millibilsástandi," segir Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Eskju. Hann segir að fyrirtækið hafi skipt ufsa-, karfa-, og grálúðukvóta fyrir síldarkvóta sem nótaskipin hafa veitt úr norsk-íslenska síldarstofninum í norskri lögsögu. Kvóti í ufsa, karfa og grálúðu nemur alls 940 tonnum af þeim 2.306 tonnum sem fyrirtækið hefur leigt frá sér undanfarnar sjö vikur. Verðmæti kvóta í þeim tegundum er um 80 milljónir af alls um 440 milljóna viðskiptum. Að auki hefur fyrirtækið m.a. þegar leigt frá sér 1.108 tonn af 1.883 tonna þorskkvóta ársins. Páll leggur áherslu á að þessi viðskipti séu í fullu samræmi við gildandi lög og reglur. Fyrirtækið hafi verið í ákveðnu millibilsástandi frá því að togarinn Hólmatindur var seldur úr landi í lok árs 2007. Páll segir að ákvörðun stjórnvalda um að skerða þorskaflaheimildir um 30 prósent sumarið 2007 hafi kippt fótum undan rekstri Hólmatinds og rekstri frystihúss fyrirtækisins. Eskja hafi leitað að nýju og hagkvæmara skipi í stað Hólmatinds en bankahrunið og efnahagserfiðleikar hafi kippt fótunum undan þeim hugmyndum í bili. Markmið fyrirtækisins sé hins vegar að hefja bolfiskveiðar á ný um leið og aðstæður leyfa. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Sjá meira