Tónleikaferðin gekk framar vonum 24. janúar 2009 05:00 Hljómsveitin lýkur tónleikaferð sinni um Evrópu í Coventry í kvöld.
Tónleikaferð hljómsveitarinnar Hjaltalín um Evrópu lýkur í ensku borginni Coventry í kvöld. Söngkonan Sigríður Thorlacius segir að ferðin hafi gengið framar vonum. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og það er eiginlega búið að vera skemmtilegt alls staðar. Það var mjög gaman í Þýskalandi og líka á Eurosonic í Hollandi,“ segir Sigríður. Eurosonic er einnig nokkurs konar viðskiptaráðstefna þar sem hljómsveitir mynda sambönd við útgefendur og aðra aðila úr tónlistarbransanum. Sigríður viðurkennir að einhver plötufyrirtæki hafi sýnt hljómsveitinni áhuga, auk þess sem bókanir á tónlistarhátíðir hafi komið til tals. Þær viðræður séu þó allar á byrjunarstigi. Tónleikaferðin er sú stærsta hjá Hjaltalín til þessa og hefur sveitin spilað hvern einasta dag síðan förin hófst í Kaupmannahöfn 8. janúar. „Við höfum verið að spila á misjafnlega stórum stöðum. Sumir eru mjög litlir eins og í Brighton þar sem við spiluðum fyrir 120 manns. Það var alveg troðið. Í París var líka fullur staður þar sem við spiluðum fyrir fimm hundruð manns,“ segir Sigríður. Hjaltalín kemur heim til Íslands á morgun og heldur síðan aftur út í febrúar í aðra tónleikaferð. Þá verður meðal annars spilað á norsku By:Larm-hátíðinni, í París, Skandinavíu og hugsanlega í Þýskalandi. - fb
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira