Elítan drakk kampavín í boði barónessu 24. janúar 2009 08:00 Fransesca von Habsburg bauð listaelítunni að borða með sér á veitingastaðnum Við Tjörnina. Þeirra á meðal voru Krummi úr Mínus, Ragnar Kjartansson, Gabríela Friðriksdóttir og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir.
Íslenskir listamenn átu og drukku í boði Fransescu von Habsburg á veitingastaðnum Við Tjörnina um svipað leyti og táragassprengjum var varpað á Austurvelli. „Þetta var auðvitað fjarstæðukennt. En það er svo sem fullt af fjarstæðukenndum og súrrealískum atburðum að eiga sér stað á Íslandi í dag,“ segir Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, en hann var meðal gesta barónessunnar. Elítan úr íslensku listalífi át og drakk í boði barónessunnar og Íslandsvinkonunnar, Fransescu af Habsburg, á miðvikudagskvöld á veitingastaðnum Við Tjörnina sem er í Templarasundi. Hún sötraði kampavín og vodka á meðan mótmælendur og lögregla slógust á Austurvelli með þeim afleiðingum að táragassprengjur voru notaðar til að sundra hópnum. Meðal þeirra sem nutu gestrisni barónessunnar þá um kvöldið voru Jónsi úr Sigur Rós og fjöllistamaðurinn Ragnar Kjartansson en þeir hafa verið áberandi í mótmælunum á Austurvelli að undanförnu. Auk þeirra var listakonan Gabríela Friðriksdóttir meðal gesta sem og hönnuðurinn Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir. Heimildir Fréttablaðsins herma að reikningurinn hafi hljóðað upp á tæp 350 þúsund. „Jú, jú, auðvitað er eitthvað fáránlegt við þetta, drekka í boði barónessu á meðan eldar loga í Reykjavík. Svona getur þetta bara stundum verið. Ísland er undarlegt land um þessar mundir,“ segir Krummi. Krumma til málsvarnar má taka fram að hann hafði staðið vaktina fyrir utan Alþingishúsið allan miðvikudaginn ásamt unnustu sinni og barið bumbur. Öskrað sig hásan með slag-orðinu „Vanhæf ríkisstjórn“. „Svo var manni bara orðið kalt og þegar hópnum var tvístrað í annað sinn af lögreglunni þá leist okkur ekkert á blikuna. Barónessan er ágætis vinkona mín og ég vissi af þessu boði þarna á veitingastaðnum. Hún borðar þarna alltaf þegar hún kemur hingað,“ útskýrir Krummi og bætir því við að barónessan hafi flogið hingað sérstaklega til að verða vitni að þeim miklu breytingum sem eiga sér stað á Íslandi um þessar mundir. Útsýnið frá Við Tjörnina er ansi gott og þegar Krummi sá af svölum veitingastaðarins sjúkraliða bera lögreglumann burt á börum fékk hann mikla ónotatilfinningu. „Ég vissi það þá að hlutirnir væru að fara úr böndunum,“ segir Krummi og það varð raunin. Táragaslyktin barst inn á staðinn og menn komust í mikið uppnám. En svo róuðust menn eftir nokkurn tíma enda ekki á hverjum degi sem Íslendingar finna táragaslykt inni á fínum veitingastöðum. Krummi segir að listamenn landsins muni áfram standa í fremstu víglínu þessarar byltingar og menn séu í miklum ham. „Enda á þetta ástand eflaust eftir að veita mörgum innblástur á næstu misserum.“ freyrgigja@frettabladid.is Blaðamannafundur von Habsburg og Kristofers Shlingensiefs Tónleikar Incubus Ragnar Kjartansson (rassi prump) og Örn Elías Guðmundsson (Mugison).
Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Cruise afþakkaði boð Trump Lífið „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Sjá meira