Vistmönnum úthýst af elliheimili Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 13. júlí 2009 17:29 Guðbjörg Stefánsdóttir ásamt móður sinni á leið frá Djúpavogi til Hafnar í dag. „
Ekki veit ég hvert hún móðir mín fer. Hún er heimilislaus eins og er, ég get ekki skilið annað," segir Guðbjörg Stefánsdóttir, en móðir hennar bjó að öldrunarheimilinu á Djúpavogi. Þegar Guðbjörg sótti móður sína í sumarfrí var þeim mæðgum tjáð að hún ætti ekki afturkvæmt. Öldrunarheimilinu yrði lokað vegna fjárskorts. „Við fengum þetta í andlitið á leiðinni út um dyrnar. Að það ætti að skella í lás," segir Guðbjörg. Til stóð að loka dvalarheimilinu í sex vikur yfir sumartímann, en samkvæmt Guðbjörgu hafði vistmönnum verið lofað að búið væri að tryggja fjármagn til að reka heimilið fram að áramótum að því loknu. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að loka því til frambúðar. Að sögn Guðbjargar hefur hvorki móður hennar né hinum vistmönnunum þremur verið boðin nein önnur úrræði. Að sögn Guðbjargar hefur móðir hennar, sem er á níræðisaldri, búið á Djúpavogi í sextíu ár. „Ég hef reynt að fá hana til Hafnar, en þarna vill hún fá að vera. Ég þarf að taka hana nauðuga," segir Guðbjörg, sem sjálf býr á Höfn í Hornafirði. Hún segir móður sinni hafa verið gefin róandi lyf áður en þær yfirgáfu öldrunarheimilið í hinsta sinn. Guðbjörg segist gera sér grein fyrir að rekstur sem þessi sé erfiður. Hún er þó reið vegna tímasetningarinnar og þess hvernig staðið var að lokuninni. Til dæmis hafi aðstandendur ekki verið boðaðir á fund vegna hennar, heldur hjúkrunarfólkið sagt henni frá nánast á leiðinni út. Björn Hafþór GUðmundsson, sveitastjóri Djúpavogshrepps, staðfestir að heimilinu verði lokað fyrr en ætlað var. Talið hafi verið að Heilbrigðisstofnun Austurlands, sem rekur dvalarheimilið, gæti haldið rekstrinum áfram til áramóta. Hann segir hluta af ástæðu lokunarinnar sú hversu fáir nýta sér þjónustuna.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira