Ákærð fyrir að ljúga til um nauðgun 28. ágúst 2009 06:15 Sundahöfn Stúlkan sagði mennina hafa nauðgað sér í húsi fyrir ofan Sundahöfn.Fréttablaðið/vilhelm
Ríkissaksóknari hefur ákært átján ára stúlku fyrir að hafa logið upp á fjóra menn að þeir hefðu nauðgað henni. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli ásakananna. Þung refsing getur legið við röngum sakargiftum af þessu tagi. Það var 4. nóvember í fyrra sem stúlkan hafði samband við lögreglu og sagði að mennirnir fjórir hefðu nauðgað henni í húsi ofan við Sundahöfn í Reykjavík. Hún ítrekaði síðan framburðinn síðar, en breytti honum á þann veg að líklega hefði einn mannanna ekki haft við hana samræði. Mennirnir voru handteknir í kjölfarið, yfirheyrðir, látnir gangast undir líkamsrannsókn og síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir gengust við því að hafa haft við hana samræði, en fullyrtu að það hefði verið með hennar vilja. Mennirnir sátu í varðhaldi í tvo daga. Stúlkan hefur nú verið ákærð fyrir rangan framburð og rangar sakargiftir, en hámarksrefsing fyrir slíkt er tíu ára fangelsi. Einn mannanna krefst tæplega 1,2 milljóna króna í skaðabætur og annar krefst hálfrar milljónar. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. - sh
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Erlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Sjá meira