Innlent

Flanagan: Þið standið undir skuldunum

Mark Flanagan og Franek Roswadovski fulltrúar AGS.
Mark Flanagan og Franek Roswadovski fulltrúar AGS.

Mark Flanagan, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, lagði áherslu á það á blaðamannafundi á Kjarvalsstöðum í dag að Íslendingar geti staðið undir skuldabyrði hins opinbera. Flanagan sagði að margir hefðu spurt sig að þessu á meðan á heimsókn hans hefur staðið síðustu daga en að hann sé sé þeirrar skoðunnar að landið geti staðið undir skuldunum.

Í tilkynningu frá AGS sem send var út í dag segir einnig að þróun hér á landi síðustu mánuði hafi „í grófum dráttum" verið samsvarandi við spá sjóðsins. Sjóðurinn býst við því að botninum verði náð á næsta ári og með því að beita styrkri peningamálastefnu ætti að vera mögulegt að ná stöðugleika í gjaldeyrismálum auk þess sem verðbólgumarkmið ættu að nást.

Þá segir að eitt aðalviðfangsefnið sé að afnema gjaldeyrishöft í landinu. Það ætti að geta hafist síðar á árinu en að afnám haftanna verði tekið í smáum skrefum.




Tengdar fréttir

Endurskoðun efnahagsáætlunar „nær lokið“

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir stjórn Mark Flanagans hefur í samstarfi við íslensk stjórnvöld nær lokið fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að sendinefndin hafi einnig átt fundi með þingmönnum, aðilum vinnumarkaðarins, háskólasamfélaginu og ýmsum hagsmunaaðilum til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og framtíðarhorfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×