Þúsund störf í púkkið 29. maí 2009 04:15 Óskar Bergsson „
Við þessar aðstæður teljum við að þetta séu mjög góð kjör,“ segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, um væntanlega fimm milljarða króna lántöku Reykjavíkurborgar hjá lífeyrissjóðum. Um er að ræða verðtryggð skuldabréf með 4,4 prósenta vöxtum til 45 ára. Lánsféð er ætlað til ýmissa framkvæmda í borginni og var ráð fyrir því gert í fjárhagsáætlun þessa árs. Óskar segir að auk þess sem lánskjörin séu hagstæð fái borgin framkvæmdirnar sjálfar á lægra verði en áður hafi verið. „Þetta er mjög mikilvægt. Það verða til 650 störf auk þess sem um 350 störf eru vegna viðhaldsverkefna sem við fjármögnum með öðrum hætti. Því má segja að Reykjavíkurborg sé að leggja eitt þúsund störf í púkkið, fyrir utan sumarstörf og vinnuskóla.“ Meðal stórra framkvæmda nefnir Óskar uppbyggingu Sæunnarskóla og Norðlingaskóla í Grafarholti. Í þá fara annars vegar 400 milljónir króna og hins vegar 300 milljónir. Þá fara 100 milljónir í leikskóla í Úlfarsárdal sem ákveðið hefur verið að þjóni einnig sem grunnskóli. „Fólk í Úlfarsárdal hefur haft áhyggjur af að ekki eigi að fara í neina þjónustuuppbyggingu þar,“ segir Óskar. Af öðrum stórum verkefnum má nefna að 500 milljónir fara í uppbyggingu á reitnum við Lækjartorg þar sem hús eyðilöguðust í eldsvoða í apríl 2007. Hundrað milljónir fara í að standsetja húsin á Laugavegi 4 og 6. Í endurbætur á Tjarnarbíói fara 175 milljónir. Þá má nefna að 315 milljónir verða notaðar í framkvæmdir við 110 rýma hjúkrunarheimili á Suðurlandsbraut 66 og 100 milljónir í skólasel í Kleifarseli 18. Í gervigrasvöll Víkinga í Stjörnugróf fara 75 milljónir, 60 milljónir í endurnýjun grasvallar hjá Þrótti í Laugardal og 45 milljónir í félagshús Leiknis í Breiðholti. gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira