Efnahagsþrengingar ógna mannréttindum 29. maí 2009 05:00 Jóhanna. K Eyjólfsdóttir
Hætta er á að pólitískt ofbeldi og kúgun ágerist og dafni í efnahagsþrengingunum sem nú ganga yfir heimsbyggðina. Niðursveiflan fjölgar bæði mannréttindabrotum og dregur frá þeim athyglina. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International sem kynnt var í gær. Í skýrslunni er greint frá mannréttindabrotum í 157 löndum og þá fylgir henni samantekt þar sem grein er gerð fyrir ástandi mannréttinda í öllum heimsálfum. Fullyrt er í skýrslunni að heimurinn sitji á félagslegri, pólitískri og efnahagslegri tímasprengju með sæki orku sína til vaxandi mannréttindakreppu. „Það er ekki nóg að takast á við efnahagsástandið, það verður að takast á við mannréttindaástandið líka,“ sagði Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty, á kynningarfundi um skýrsluna í gær. Ef ein kreppa er hunsuð og einblínt á aðra, verður slíkt einungis til að magna þær báðar, segir í skýrslunni. Amnesty tekur dæmi af hálfvolgum viðbrögðum alþjóðasamfélagsins við mannréttindabrotum í heiminum. Þannig sé til dæmis gríðarmiklum fjármunum eytt í baráttu gegn sjóræningjum undan ströndum Sómalíu en ekki til að stöðva flæði vopna inn í landið sem beitt er gegn óbreyttum borgurum. Þá séu viðbrögð við hræðilegum fórnarkostnaði í mannslífum, meðal annars á Gasa, í Darfur í Súdan og á Srí Lanka, hneykslanleg. Amnesty fagnar ákvörðun Obama Bandaríkjaforseta um að loka Gvantanamo-fangabúðunum á Kúbu og hafna pyntingum, en samtökin hvetja hann jafnframt til að tryggja að þeir sem bera ábyrgð verði sóttir til saka. Vegna þess hversu mikilla breytinga er þörf hefur Amnesty ákveðið að hleypa af stokkunum nýrri herferð sem ber heitið „Krefjumst virðingar“ og beinist gegn þeim mannréttindabrotum sem búa að baki fátækt og auka hana. „Umræðan um fátækt hefur ekki snúist um virðingu, heldur ölmusu, og þessu viljum við breyta,“ segir Jóhanna. Fyrsta krafa samtakanna í herferðinni beinist að Bandaríkjunum, sem ekki viðurkenna efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, og Kína, sem ekki viðurkennir borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. stigur@frettabladid.is heidur@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira