Stjórnendurnir fóru í 60 ferðir til útlanda 23. mars 2009 13:39
Stjórnendur Sameinaða lífeyrissjóðsins fóru 60 sinnum til útlanda, þar af rúmlega 30 boðsferðir, og í sex laxveiðiferðir á vegum sjóðsins á tímabilinu 2003 til 2008. Þetta kemur fram í svari sjóðsins við fyrirspurn frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna. Stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna óskaði 27. janúar eftir upplýsingum um boðsferðir, gjafir og annað sem framkvæmdastjóri, forstöðumaður eignastýringar og stjórnarmenn sjóðsins hefðu þegið af félögum sem sjóðurinn hefur fjárfest í frá og með árinu 2003 til ársloka 2008.Samskipti vegna erlendra eigna kölluðu á utanlandsferðir ,,Mikil samskipti hafa verið við íslensku bankana vegna innlendra og erlendra eigna sjóðsins, en þeir hafa annast ráðgjöf, eignastýringu og ýmis viðskipti í tengslum við þær. Sjóðurinn hefur einnig átt í beinum samskiptum við erlenda eignarstýringaraðila, sem hafa veitt margvíslega þjónustu er varða úttektir og upplýsingagjöf," segir í svari Sameinaða lífeyrissjóðsins. Þar segir að samskiptin hafi fyrst og fremst verið í höndum Kristjáns Arnar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra sjóðsins, og Sigríðar Hrundar Guðmundsdóttur, forstöðumanns eignastýringasviðs. Samskiptin hafi kallað á allnokkrar utanlandsferðir sem bæði hafa verið skipulagðar af sjóðnum sjálfum en einnig af fyrirtækjum sem sjóðurinn var í viðskiptum við.Að jafnaði skipulagðar kynnisferðir Umræddir starfsmenn fóru í fimm ferðir á ári vegna eigna sjóðsins erlendis en að auki fór Ólafur Haukur Jónsson, forstöðumaður rekstrarsviðs, í tvær slíkar ferðir síðastliðin tvö ár. ,,Að jafnaði hefur um helmingur þessara ferða verið skipulagðar kynnisferðir fyrir fulltrúa íslenskra fjárfesta vegna tiltekinna fjárfestingaverkefna erlendis og hafa þær verið greiddar af samstarfsaðilum Sameinaða lífeyrissjóðsins." Í svarinu kemur fram að aðrar utanlandsferðir hafi verið að frumkvæði sjóðsins og greiddar af honum. ,,Innanlands hafa framkvæmdastjóri og forstöðumaður eignastýringarsviðs hvort um sig þegið eina stutta boðsferð árlega í veiði undanfarin þrjú ár. Stjórnarmenn Sameinaða lífeyrissjóðsins hafa hins vegar ekki þegið boðsferðir á vegum sjóðsins, hvorki innanlands né utan." Fyrirspurn stjórnar Félags vélstjóra og málmtæknimanna er hægt að nálgast hér og svar Sameinaða lífeyrissjóðsins hér.
Mest lesið Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Með töskurnar fullar af marijúana Innlent Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Fleiri fréttir „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Sjá meira