Klínísk sjónarmið ráða því hverjir fá Tysabri lyfið 23. mars 2009 15:00
Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, segir læknisfræðileg sjónarmið og niðurstöður rannsókna ráða því hvaða sjúklingar fái tysabri meðferð á spítalnum. Ein aðalástæðan fyrir töf eru dauðsföll eftir gjöf lyfsins erlendis. Fjallað hefur verið um málið í fréttum Stöðvar 2 að undanförnu. Lyfið er nýtt og hefur hamlandi áhrif á MS sjúkdóminn. Tveir MS sjúklingar á Akureyri kenndu fyrir helgi kreppu og niðurskurði um að þau fá ekki lyfið. Þau sögðu að lífi þeirra væri ekki sýnd virðing. Þá hélt Ásta Möller, alþingismaður og hjúkrunarfræðingur, því fram um helgina að jafnvel menntun hafi ráðið því hverjir fái lyfið og hverjir ekki.Dauðsföll erlendis gefa tilefni til varfærni Björn segir í tilkynningu að Landspítali hafi staðið afar faglega að Tysabri meðferð og að nú hafi hlutfallslega fleiri sjúklingar á Íslandi fengið lyfið en annars staðar á Norðurlöndum sé miðað við höfðatölu. ,,Árið 2008 stóð til að gefa 50 MS sjúklingum lyfið en í dag hafa 45 fengið þessa meðferð. Ein aðalástæða þess að töf hefur orðið á gjöf voru dauðsföll eftir gjöf tysabri erlendis sem gáfu tilefni til aukinnar varfærni. Af 45 sjúklingum sem hafa fengið lyfið hérlendis hafa 3 þurft að hætta meðferð vegna ofnæmisviðbragða." Björn segir að ýmsir hafi hvatt til meiri tysabri gjafar þrátt fyrir að erlend reynsla sýni að aukaverkanir geti verið lífshættulegar. Ef illa fer sé ábyrgðin hins vegar Landspítala. ,,Það er því nauðsynlegt fyrir öryggi sjúklinga að meðferð sem þessari sé stjórnað af færustu sérfræðingum. Á hinn bóginn er afar skiljanlegt að þeir sem þjást af MS reki á eftir meðferð."Svarar orðum Ástu Möller Um gagnrýni Ástu Möller segir Björn að menntunarstig sjúklinga hafi ekki áhrif á ákvörðun um val á fólki í meðferð. ,,Það sem stjórnar því hverjir fá þessa meðferð er klínískt mat sérfræðinga, auk niðurstaðna úr ákveðnum rannsóknum á sjúklingum. Til þess að fá þessa meðferð þarf að uppfylla atriði sem tilgreind eru nákvæmlega í klínískum leiðbeiningum spítalans og byggjast á gagnreyndum rannsóknum." - MS sjúklingar sem fá lyfið Tysabri veigra sér við að segja frá því, 22. mars. - Menntun ræður hver fær MS lyfið Tysabri, 21. mars. - Vanvirðing fyrir lífinu, 20. mars.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira