Frægari en hann vildi viðurkenna 23. mars 2009 13:13 Benedikt S. Lafleur er skráður í Samfylkinguna en ekki L listann.
Í tilkynningu frá sundkappanum Benedikt S. Lafleur, kemur fram að hann er ekki félagi L listans og hefur ekki hug á nokkurn hátt að styðja það stjórnmálaafl eða er handgenginn því framboði á nokkurn hátt. „Undanfarið hafa margir komið að máli við mig eftir að ég birtist augnablik á kynningarfund L listans og var myndaður í fréttum Ríkissjónvarps, ég hef fengið póst frá ýmsu fólki og verið stoppaður á götu úti vegna þess að svo margir halda að ég sé byrjaður í nýjum stjórnmálaflokki," segir Bendedikt í yfirlýsingunni. Þá segir hann að það hafi komið sér á óvart hve margir höfðu fylgst með fréttunum og séð sig í sjónvarpinu. „Ég er farinn að trúa því að ég sé frægari en ég vildi viðurkenna," segir Benedikt í yfirlýsingunni. Hann segist hafa verið staddur á umræddum fundi af forvitni og eiginlega fyrir tilvijlun að fá sér kaffi. „Bjarni Harðarson rekur bókabúð á Selfossi, Sunnlenska, og ég þekki hann af þeim viðskiptum. Vissi reyndar ekki að L listinn væri svona andsnúinn ESB fyrr en ég rak augun í það í blöðunum á sama augnablikinu og ég var filmaður. Þess var hins vegar ekkert sérstaklega getið í skeytum listans á Face book." Benedikt segir að þessi misskilningur sé sérstaklega óþægilegur þar sem stefna L listans sé á alveg öndverðum meiði við stjórnmálaskoðanir sínar, en hann er eindreginn Evrópusinni að eigin sögn. „Er skráður í Samfylkingunni og tel að sá flokkur með Jóhönnu í fararbroddi sé langbesti kostur fyrir Íslendinga í þeirri stöðu sem við erum í núna. Vinstri grænir standa sig líka vel en ég er ósammála stefnu þeirra í evrópumálum og það að kalla sig vinstri flokk, ég er nefnilega ekki neitt sérstaklega vinstri sinnaður, heldur fremur miðjumaður, eða segjum óháður hinni gömlu kreddupólitík: vinstri - hægri." Þess má geta að í síðusut kosningum var Benedikt í framboði fyrir Íslandshreyfinguna.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira