Vilja gufubað við Laugarvatn í sumar 23. mars 2009 03:30 Unnið er að því að opna bráðabirgðaaðstöðu fyrir gufubað á Laugarvatni í sumar. Framkvæmdir við nýja aðstöðu eru ekki hafnar, en unnið er að því að auka hlutafé.fréttablaðið/vilhelm
Viðræður eru í gangi um að koma á fót bráðabirgðaaðstöðu fyrir gufubað á Laugarvatni í sumar. Viðræður standa yfir um afnot af húsnæði, en niðurstaða liggur ekki fyrir. Gufa ehf., sem hyggur á rekstur heilsulindar á svæðinu, kemur ekki að vinnu við mögulega bráðabirgðaaðstöðu. „Það er verið að skoða möguleikana á því að koma upp bráðabirgðaaðstöðu. Sú athugun er í fullum gangi og í sjálfu sér ekkert meira um málið að segja á þessari stundu,“ segir Hafþór Guðmundsson, hjá Hollvinasamtökunum. Ekki hefur verið gufubað við Laugarvatn síðan 2007 þegar gamla aðstaðan var rifin. Fyrirhugað er að reisa nýja og glæsilega heilsulind á svæðinu og gerðu fyrstu áætlanir ráð fyrir að hægt yrði að opna aðstöðuna í fyrrahaust. Kristján Einarsson, framkvæmdastjóri Gufu ehf., sagði í samtali við Fréttablaðið í fyrra, að mögulega yrði hægt að hefja starfsemi vorið 2010. Kristján segir fyrirtækið ekki koma að hugmyndum um bráðabirgðaaðstöðu, en hann vonist til að hægt verði að fara í gufu á Laugarvatni í sumar. „Þetta er með skilningi okkar, ef af verður. Við viljum viðhalda gufumenningunni á staðnum.“ Kristján segir lán í óláni að framkvæmdir hafi ekki verið hafnar fyrir lánsfé þegar kreppan skall á í fyrra. Fyrirtækið eigi sitt hlutafé og verið sé að vinna að því að auka það. Fullur hugur standi til að fara í verkefnið um leið og hægt er. Hann segist ekki geta sagt hvenær það verði, enda gangi hægar með fjármögnun nú vegna ástandsins. „Við erum vongóðir um að það komi inn nýir aðilar, en ástandið núna er þannig að fjármagn er ekki beint á lausu. En sem betur fer fórum við ekki af stað í fyrra með stór erlend lán á framkvæmdinni. Stór hluti væri þá farinn núna.“ Hafþór tekur undir það og segir víða leitað fanga eftir fjármagni. „Það eru allar teikningar tilbúnar og um leið og við fáum fjármagn inn í verkið getum við hafist handa.“ Vegur um Lyngdalsheiði var boðinn út í maí í fyrra og eru verklok áætluð árið 2010. Aðstandendur gufubaðsins vonast til þess að með honum verði styrkari stoðum skotið undir rekstur gufubaðsins.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira