Hefur gengið vonum framar 23. mars 2009 03:00 Yfirlögfræðingur hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga er ánægður með innheimtuhlutfall meðlagsgreiðslna fyrstu tvo mánuði ársins. fréttablaðið/pjetur „
Þetta hefur gengið vonum framar hingað til og við getum ekki verið annað en sátt, því við höfðum reiknað með meiri samdrætti. En auðvitað eru blikur á lofti hér eins og annars staðar,“ segir Jón Ingvar Pálsson, yfirlögfræðingur hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga, sem sér um innheimtu meðlagsgreiðslna. Innheimtuhlutfall greiðslnanna hefur lækkað í kringum ellefu prósent frá því á sama tíma á síðasta ári. Að sögn Jóns Ingvars innheimti stofnunin meðlagsgreiðslur að upphæð 416 milljónir króna fyrstu tvo mánuði þessa árs, miðað við 426 milljónir í fyrra. Upphæð greiðslnanna hækkaði um 9,6 prósent um áramótin. Sé sú hækkun tekin með er innheimtuhlutfallið nú um 69 prósent, en var 80 prósent. Jón Ingvar segir að í ljósi efnahagsástandsins sé hátt innheimtuhlutfall verðugt rannsóknarefni fyrir félagsfræðinga. „Í gegnum árin hefur það virst sem svo að verðmætamat fólks breytist í niðursveiflum, þegar þrengir að. Fólk hugsar kannski frekar um að framfæra börnin sín en að kaupa sér vélsleða eða eitthvað slíkt. En þetta eru auðvitað bara vangaveltur.“ Jón Ingvar segir mikið um að atvinnulaust fólk leiti til stofnunarinnar og óski eftir greiðslufresti. „Það er tekið vel í það hjá fólki í þessu ástandi,“ segir Jón Ingvar Pálsson.- kg
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira