Mun ekki endast ævina til að biðja alla afsökunar 16. febrúar 2009 19:29
Annþór Kristján Karlsson er þrjátíu og þriggja ára gamall og segist vera með meistarapróf í glæpum. Hann afplánar nú dóm fyrir fíkniefnainnflutning á Litla-Hrauni en segist breyttur maður. Hann lærir spænsku og ætlar að flytja til Spánar að afplánun lokinni. Annþór segist ekki endast ævin til þess að biðja alla þá sem hann hafi brotið á afsökunar en hann var í viðtali við Ísland í dag í kvöld. Annþór segir brotaferil sinn hafa byrjað strax þegar hann var fimm ára gamall á róló, þar hafi hann veirð ofbeldishneigð frekjudolla. „Ég byrjaði svo í glæpum þegar ég var ellefu ára gamall og fór svo í drykkju 13-14 ára og eftir það á fullt í óreglu," sagði Annþór. Hann sagðist ekki geta nefnt það versta sem hann hefði gert því það væri svo margt. „Ég hef gert margt ljótt í gegnum tíðina það er ekki hægt að hylja yfir það. Ég var í öllu sem var ólöglegt. Þegar maður er í þessu kemur þessi réttlætiskennd upp í manni og maður réttlætir hlutina fyrir sjálfum sér og það er það sem er sjúkt. Þessi rændi þessu af manni og því á hann skilið að vera laminn í klessu, þannig virkar hausinn hjá manni því hann er ekki að virka eðlilega," sagði Annþór sem situr nú í fangelsi í þriðja skipti á ævinni. Ber ábyrgð í glæpaheiminum Hann sagði að nú fyrst langi sig að fara nýjar brautir í lífinu. „Þegar ég verð alveg laus fer ég úr landi því ég hef ekki þann kost að búa á Íslandi. Ef ég ætla að snúa við blaðinu og fara í rekstur mun þetta alltaf fylgja mér og líka þessi ábyrgð sem fylgir glæpaheiminum," sagði Annþór. „Ef það er eitthvað vesen og það á að lemja einhvern sem gerði einhverjum eitthvað þá er alltaf leitað til mín og spurt hvort það sé í lagi. Þegar uppi er staðið er maður kominn inn í miðdepilinn á fullt af málum án þess að vilja koma nálægt þeim," sagði Annþór sem heldur því fram að AA-samtökin hafi hjálpað sér. „Það hefur gjörbreytt lífi mínu því ég sá mig aldrei sem alkóhólista. Í mínum augum voru þeir bara aumingjar sem gátu ekki dópað og drukkið nógu mikið. Ég hef síðan verið að vinna þessa sporavinnu og við það hefur orðið stór viðhorfsbreyting hjá mér." Langar til Spánar Annþór er nú formaðru Afstöðu, félags fanga á Litla-hrauni og sagðist hafa tekið það starf að sér vegna þess að honum hafi langað til þess. „Áður fyrr hefði ég aldrei gert það nema ég hefði fengið borgað fyrir það og grætt eitthvað á því." Hann segir engann þurfa að hafa trú á því að hann muni breyta um lífsstíl. „Það þarf enginn að trúa mér, það er nóg að ég viti það sjálfur og ég er ekki að biðja um neina vorkun." Annþór sagðist sjá eftir mörgu og taldi að mikill tími myndi fara í að bæta fyrir misgjörðir sínar. „Mig langar að biðja fullt af fólki afsökunar en mun líklega ekki endast ævin til þess. Ég vona hinsvegar að ég komi betri maður héðan út. Ef ég verð edrú þá mun mér takast það," sagði Annþór sem sér sjálfann sig í iðnaðarbransanum á Spáni í framtíðinni. „Mig langar bara í ylinn og svo heillar spænskan mig þó ég kunni hana ekki, nú er ég hinsvegar kominn í skóla og er að læra hana þar."
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira