Orð Davíðs dæma sig sjálf 30. mars 2009 06:00 Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir niðrandi ummæli Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, um Svein Harald Øygard seðlabankastjóra dæma sig sjálf. Davíð sagði Svein Harald annað hvort lygara eða haldinn Alzheimer sjúkdómnum. Steingrímur telur þau orð, og önnur í ræðu Davíðs á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á laugardag, hvorki skaða Svein Harald né Seðlabankann. „Nei, þetta eru ummæli sem dæma sig svo gjörsamlega sjálf." Steingrímur kveðst ekki ætla að tjá sig efnislega um ræðu Davíðs sem hann lagði á sig að horfa á á netinu. „En mér fannst merkileg upplifun að heyra klappað í hálftíma fyrir þessum málflutningi. Framsetning mála var af því tagi að mér fundust brandararnir ekki fyndnir," segir Steingrímur. Spurður um mat sitt á landsfundi sjálfstæðismanna almennt segir Steingrímur afneitun og úrræðaleysi hafa einkennt hann. „Það er dapurlegt að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að flýja frá veruleikanum, leggjast í hræðsluáróður og draga upp skattahækkanagrýlu án þess að svara hvernig hann hyggst takast á við fjárlagahallann sem er hans arfleifð. Þá er nú stórmannlegra að viðurkenna viðskilnaðinn." Steingrímur óskar Bjarna Benediktssyni til hamingju með formannskjörið og kveðst vænta góðs af honum enda hafi þeir átt ágætt samstarf í þinginu. - bþs
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði