FME var bundið af of þröngri löggjöf 31. mars 2009 06:15 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Evrópusambands-aðild og upptaka evru myndi leysa vandann sem fylgir smárri og sveiflukenndri mynt, segir Karlo Jännäri, einn helsti bankasérfræðingur Finna. Hans skoðun sé að Íslandi væri hollast að fara að dæmi Finna í endurreisn. Jännäri kynnti í gær skýrslu um reglur og eftirlit með bankastarfsemi hér. Jännäri rekur hrun bankakerfisins til þátta sem lýsa mætti sem blöndu af slökum bankarekstri, lélegri stefnu og óheppni. Hann áréttar þó að regluverk hér hafi verið með sama hætti og gerist á Evrópska efnahagssvæðinu og sömu annmörkum háð. Þá hafi hendur Fjármálaeftirlitsins (FME) verið bundnar um of af þröngri löggjöf. Mælist Jännäri til þess að við endurskoðun á lagaumgjörð hér verði haldið í auknar valdheimildir FME úr neyðarlögunum sem samþykkt voru í haust. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir koma til greina að gera það. Jännäri telur hæpið að hér verði byggt upp á ný risastórt bankakerfi. „Það gengi ekki meðan krónan er gjaldmiðill. Og jafnvel gæti það verið örðugt með evrunni, vegna vafamála um hvort Seðlabanki Evrópu sé í raun lánveitandi til þrautavara fyrir aðildarríkin." Ragnar Hafliðason, starfandi forstjóri FME, telur skýrslu Jännäris gefa nokkuð raunsanna mynd af því hvernig málum hafi verið háttað. „Og þar kemur Fjármálaeftirlitið ekkert illa út, þótt auðvitað sé ýmislegt gagnrýnt," segir hann, en telur vandséð hvort eftirlitsstofnanir hefðu getað gengið harðar fram gegn bönkunum og látið þá um að sækja rétt sinn fyrir dómstólum teldu þeir á sér brotið. Jännäri benti á að slíkt kynni að hafa verið gert annars staðar. „En hér er nú ekki hefð fyrir slíku," segir Ragnar. - óká /
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira