Mannlíf frestast vegna viðkvæms forsíðuefnis 31. mars 2009 06:00 Reynir Traustason segir tilraun með útgáfu fréttamagasíns fullreynda en útgáfa Mannlífs undanfarin ár var rekin með miklu tapi. „
Nei, það er vont að tala um hvað verður á forsíðunni svona löngu áður en blaðið kemur. Við erum þjófhræddir. Við frestuðum útgáfu blaðsins um viku vegna þess hversu viðkvæmt þetta efni er," segir Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs. Tímaritið Mannlíf var sett í salt um síðustu áramót en hefur verið endurvakið og er það í raun ritstjórn DV sem sér um tímaritið auk nokkurra lausapenna. Feðgarnir Reynir og Jón Trausti eru ritstjórar en aðstoðarritstjórar þeir Þórarinn Þórarinsson og Brynjólfur Guðmundsson. Blaðið fer í dreifingu til áskrifenda annan miðvikudag en fer í verslanir eftir um tíu daga. „Við höfum notað tímann sem gafst eftir að mánudagsblað DV var lagt af. Enginn fastakostnaður er á blaðinu en það eru starfsmenn DV auk annarra starfsmanna Birtings sem leggja til efni. Það er ekki full vinna að gefa út," segir Reynir. Hann lýsir því að útgáfan hafi verið mjög erfið undanfarin tvö ár og Mannlíf hafi verið rekið með tapi. Reynir segir jafnframt það ekki fullt starf að ritstýra tímariti sem komi út nokkrum sinnum á ári. Til stendur að gefa Mannlíf út eftir því hvernig stemningin er og svo eru einhverjir fastir liðir sem kalli á útgáfu: Gaddakylfublaðið með glæpasögum komi út næst, tekjublað í ágúst og svo sjá menn til. Tímaritið verður meira í ætt við Mannlíf ársins 2006 en það var í ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar undir það síðasta. „Þessi tilraun með að gera fréttamagasín er fullreynd. Hún stóð í tvö ár og ekki með góðum árangri. Þetta er nýtt blað, metnaðarfullt verkefni, og hefur Jón Óskar verið vakinn og sofinn í tvo mánuði við að endurteikna blaðið," segir Reynir sem nú titlast ritstjóri Mannlífs þriðja sinni.- jbg
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira