Skólameistari vissi um barnaklámsrannsókn Telma Tómasdóttir skrifar 31. mars 2009 18:47
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi var kunnugt um að lögregla rannsakaði kennara við skólann fyrir að hafa mikið magn barnakláms í sinni vörslu. Þrátt fyrir tilmæli yfirvalda til skólameistarans um að rétt væri að endurskoða starfsvettvang kennarans var ekkert aðhafst og hélt kennarinn áfram að kenna nemendum skólans. Fréttastofan hefur greint frá máli Björgvins Þórissonar, sem var enskukennari við Menntaskólann í Kópavogi um árabil, en hann var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur síðast liðinn föstudag fyrir að geyma mikið magn mynda í tölvu sinni sem sýndu börn á klámfenginn hátt. Málið komst upp í júní í fyrra, en Björgvin hélt áfram kennslu við skólann þrátt fyrir að rannsókn á máli hans stæði yfir. Var honum ekki gefið leyfi frá störfum fyrr en á sunnudag. Spurð um hvort skólastjórnendur hefðu vitneskju af þessu tiltekna máli í gær svaraði skólameistari að svo hefði ekki verið. Málið er hins vegar ögn flóknara, því að á sama tíma og barnaklámsefnið finnst rannsakaði lögreglan ásakanir um meint kynferðisbrot Björgvins gegn fósturdóttur sinni. Skólameistara Menntaskólans í Kópavogi var gerð grein fyrir þeirri rannsókn í bréfi sem boðsent var 8. september 2008. Í bréfi dagsettu 18. nóvember 2008 barst skólameistaranum síðan annað bréf þar sem segir að ekki hafi verið nægilegar sannanir á meintum kynferðisbrotum til að Björgvin yrði sakfelldur. Í sama bréfi segir hins vegar að Björgvin hafi myndefni í sínum fórum sem sýni börn á klámfenginn hátt og að sá hluti málsins teljist líklegur til sakfellis. Þar segir jafnframt orðrétt og er vísað í bréf aðstoðarsaksóknara: "Í ljósi þess að í vörslum kærða fannst mikið magn af klámfengnu myndefni af börnum, sem hann gekkst við að eiga, verður að telja sýnt að atferli hans sé með þeim hætti að rík ástæða sé til að endurskoða hvort rétt sé að hann gegni störfum sem hafa að gera með samskipti við börn." Tekur Félagsmálaráð Kópavogs undir þessi orð. Skólameistari menntaskólans sá hins vegar ekki ástæðu til að bregðast við.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira