Dauðaslysum barna hefur fækkað um helming á 20 árum 31. mars 2009 10:05 Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins.
Dauðaslysum og slysum á börnum hefur fækkað um helming á tæpum tveimur áratugum. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem gefin var út árið 2007 af heilbrigðisráðuneytinu, en skýrslan var unnin til að skoða stöðu á markmiðum heilbrigðisáætlunar til ársins 2010. „Árið 1991 hófst skipulagt starf í slysavörnum barna á Íslandi," segir í tilkynningu frá Forvarnahúsinu. „Veruleg fækkun hefur orðið á barnaslysum hér á landi síðan þá og má það fyrst og fremst þakka öflugu slysavarnastarfi. Ýmsir aðilar hafa komið að því forvarnarstarfi í gegnum tíðina." Árið 1991 var fjöldi slysa á börnum á aldrinum 0-14 ára tæp 22.000 Í dag eru þau tæplega 10.000. Dauðaslysum hefur einnig fækkað um rúman helming og má einkum rekja það til fækkunnar á drukknunum. Þá segir að nýjar áherslur í fræðslu til foreldra ungra barna hér á landi hafi vakið athygli í Evrópu en þær eiga sér ekki hliðstæður í öðrum löndum. Þær felast í eftirfarandi atriðum: Öllum foreldrum á landinu er nú boðið á ókeypis 90 mínútna námskeið í Forvarnahúsinu skömmu eftir að barnið er fætt. Þar er lögð áhersla á slysavarnir í heimahúsum en 60% ungra barna slasa sig inni á heimilum. Foreldrar eru einnig fræddir um öryggi barna í bílum en mikið er um ranga notkun á barnabílstólum. Fræðsla um slysavarnir á meðgöngu með sérstaka áherslu á val á réttum búnaði fyrir barnið og réttri notkun hans. Skipulögð og samræmd fræðsla til foreldra barna í ung- og smábarnavernd á öllu landinu. Samræmt fræðsluefni/bæklingar fyrir foreldra. Efnið má nálgast á heimasíðu Miðstöðvar heilsuverndar barna www.heilsugaeslan.is Fræðsluefni (ítarefni) um slysavarnir barna fyrir fagfólk í ung- og smábarnavernd til að efla fræðslu til foreldra og tryggja samræmda upplýsingagjöf. „Tilgangur með þessu nýja fræðsluefni er að efla slysavarnir barna og þar með að fækka slysum enn frekar. Með sameiginlegu átaki allra aðila sem koma að umönnun barna ætti það að takast," segir að lokum.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Fleiri fréttir Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sjá meira