Geðhjálp vil segja sig úr Öryrkjabandalaginu 31. mars 2009 18:39 Sveinn Magnússon segir þjónustu ekki fullnægjandi við geðfatlaða.
Stjórn Geðhjálpar íhugar að segja sig úr Öryrkjabandalaginu komið það ekki til móts við aukna þjónustu við geðfatlaða í búsetuúrræðum á vegums bandalagsins. Tillaga þess eðlis var samþykkt á aðalfundi Geðhjálpar nú um helgina. Í greinagerð sem fylgdi tillögunni segir að Geðhjálp hafi fengið nóg af mannréttindabrotum, eins og það er orðað í greinargerðinni sjálfri. Ástæðan fyrir hugsanlegri úrsögn er fyrst og fremst vegna ágreinings um viðeigandi þjónustu við geðfatlaða, s.s. heimahjúkrun og fleira. „Í ljósi nútímans þá er rekstur búsetuúrræða barns síns tíma," segir Sveinn Magnússon framkvæmdarstjóri Geðhjálpar en hann áréttar að búsetuúrræði, með því fyrirkomulagi líkt og það er rekið nú, sé staðnað og brot á mannréttindum. Hann segir húsnæðiskerfið stríða gegn nútímastefnu EDF - Evrópusmtök fatlaðra sem og réttindum fatlaðra í mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Það eru einkenni geðfatlaðra að einangra sig og oft er fólk ekki fært um að sækja sér viðeigandi þjónustu," segir Sveinn Magnússon og bendir á að geðfatlaðir týnast í búsetuúrræðum Öryrkjabandalagsins. Hann segir afar ljót dæmi hafa komið upp, til dæmis hafa einstaklingar fundist látnir í húsnæði sínu mörgum dögum eða vikum eftir andlát. Þá rifjar Sveinn upp umdeilt mál þar sem íbúi búsetuúrræða Öryrkjabandalagsins lést eftir að blöndunartæki í íbúðinni reyndust gölluð. „Þrátt fyrir formleg, og óformleg áköll þá hefur viðleitni okkar ekki verið sinnt. Við metum það svo að við verðum ekki verr settir en núna segjum við okkur úr bandalaginu," segir Sveinn en stjórnin hefur vald til þess að segja sig úr bandalaginu miðað við samþykkt aðalfundarins. Spurður hverjar líkurnar séu á því að slíkt verði að alvöru, segir Sveinn ákveðnar þreifingar enn til staðar, það verður að fullreyna hvort bandalagið og Geðhjálp nái sátt um viðeigandi þjónustu. Alls eru fjórtán þúsund öryrkja hér landi og af þeim um fimm þúsund manns sem hafa greinst með geðraskanir.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Skjálftahrina út af Reykjanesi Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Sjá meira