Senda ESB athugasemdir vegna bankahrunsins 16. apríl 2009 17:39 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Íslands.
Utanríkisráðuneytið, í samráði við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið, hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins athugasemdir af Íslands hálfu varðandi viðbrögð við fjármálahruninu og nauðsynlegar aðgerðir til að stemma stigu við afleiðingum þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Þar segir ennfremur að í athugasemdum Íslands sé tekið undir megin tillögur de Larosière skýrslunnar varðandi endurskipulagningu eftirlits með fjármálakerfinu í Evrópu. „Af Íslands hálfu er lögð sérstök áhersla á mikilvægi þess að EES/EFTA-ríkin, sem eru fullgildir aðilar að sameiginlegum fjármálamarkaði í Evrópu á grundvelli EES-samningsins, geti tekið þátt í uppbyggingu nýs fjármálaeftirlitskerfis og átt aðild að fyrirhuguðu Fjármálakerfisáhætturáði Evrópu, European System Risk Council," segir í tilkynningunni. Þá segir að lögð sé mikil áhersla á endurskipulagningu innstæðutrygginga fyrir fjármálastofnanir og að nauðsynlegt sé að styrkja viðbragðsgetu og samábyrgð þvert á landamæri til að koma í veg fyrir hrun einstakra hagkerfa. Hvatt er til að settur verði lagalegur rammi um starfsemi matsfyrirtækja sem tryggi gagnsæi og að hagsmunir þeirra byggi eingöngu á hlutlægri greiningu á lánshæfi. Áhersla er einnig lögð á að settar verði reglur um að umbunarkerfi stjórnenda taki mið af langtíma hagsmunum fyrirtækja fremur en skammtíma ávinningi og áhættusækni. Þá er einnig lögð áhersla á nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu um aðgengi að upplýsingum um fjármagnsflótta í skattaskjól. Athugasemdir Íslands eru settar fram í kjölfar yfirlýsingar Evrópusambandsins frá 4. mars sl. þar sem framkvæmdastjórnin óskaði eftir tillögum og sjónarmiðum frá hagsmunaaðilum utan ESB sem innan. Framkvæmdstjórnin mun leggja fram endanlegar tillögur sínar um aðgerðir fyrir leiðtogafund ESB í júní nk. Þær tillögur munu m.a. leiða til þess að settar verða fjölmargar nýjar reglur sem snerta munu Ísland með beinum hætti í gegnum EES-samninginn.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira