Innlent

Smíða stól fyrir hæsta mann heims

Sigurjón og Erlendur hjá GÁ húsgögnun komust báðir fyrir í stólnum sem þeir smíðuðu fyrir hæsta mann heims. Fréttablaðið/anton
Sigurjón og Erlendur hjá GÁ húsgögnun komust báðir fyrir í stólnum sem þeir smíðuðu fyrir hæsta mann heims. Fréttablaðið/anton

„Þeir frá Hótel Loftleiðum höfðu samband á þriðjudag og voru í miklu veseni, því þeir áttu engan stól fyrir karlinn að sitja á. Við fengum þess vegna 48 klukkutíma til að smíða stólinn, og erum dálítið að giska okkur áfram með þetta. Það verður spennandi að sjá hver útkoman verður," segir Erlendur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá GÁ Húsgögnum.

Fyrirtækið fékk það verkefni að smíða sérhannaðan stól fyrir Tyrkjann Sultan Kosen, hæsta mann heims, sem væntanlegur er til landsins í dag í tilefni af útkomu nýjustu Heimsmetabókar Guinness. Kosen er tæplega tveir og hálfur metri á hæð.

Starfsmenn GÁ Húsgagna voru í miðjum klíðum við að setja saman grind fyrir stólinn þegar Fréttablaðið hafði samband í gær. „Mér skilst að Kosen muni nota stólinn á hótelinu og einnig þegar hann gefur eiginhandaráritanir og slíkt," segir Erlendur.

Grétar Árnason eigandi, sem stofnaði GÁ Húsgögn árið 1975, segir þetta verkefni vissulega forvitnilegt, en fyrirtækið hafi áður fengist við undarleg verkefni.

„Laxaroðsveggurinn sem við gerðum fyrir Hótel Þingholt er mjög sérstakur, en þá bjuggum við til flísar úr 580 roðum. Við gerðum líka sófa fyrir heimssýninguna árið 2000 og fleira. Við höfum lent í ýmsu," segir Grétar. Aðspurður segir hann að hæsta manni heims sé velkomið að taka stólinn með sér heim eftir heimsóknina, kjósi hann svo.


Tengdar fréttir

Telur siðareglurnar bíræfnar

Ólafur F. Magnússon greiddi atkvæði gegn nýjum siðareglur borgarfulltrúa á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. Hann lét bóka að tregða borgarfulltrúa við að upplýsa um prófkjörsstyrki, auk annars, gerði slíkar siðareglur marklausar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×