Safna fyrir bágstaddar konur í Suður-Afríku Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2009 12:56 Höfðaborg í Suður-Afríku.
Söfnunarátak Enza hjálparsamtakanna nær hámarki í Smáralindinni á morgun, laugardaginn 31. október, með fjölbreyttri dagskrá listamanna. Dagskráin stendur yfir frá klukkan tvö til fjögur. Í tilkynningu frá Enza kemur fram að samtökin hafi fengið styrk frá Auði Capital fyrr á árinu til að festa kaup á húsnæði undir Enza-skólann sem starfræktur er í fátækrahverfi skammt frá Höfðaborg í Suður-Afríku. Nú sé verið að safna fyrir rekstri skólans og tímabundnu heimili fyrir skjólstæðinga Enza. Sjö íslenskar konur standa á bakvið starfsemina. Ein þeirra er búsett á svæðinu og sér um starfið sem byggir á menntun og fræðslu til stúlkna og kvenna sem neyðast til að gefa frá sér nýfædd börn sín vegna fátæktar og/eða útskúfunar. Enza samtökin segja að í mörgum tilfellanna sé stúlkunum nauðgað, en Suður-Afríka hefur þann vafasama heiður að vera það land þar sem nauðganir eru flestar á heimsvísu. Þar er konu nauðgað á 17 sekúndna fresti samkvæmt könnun Gallup. „Verði konurnar ófrískar í kjölfar nauðgunarinnar eru þær gjarnan gerðar ábyrgar fyrir nauðguninni og oftar en ekki útskúfaðar út af skömm yfir því að vera barnshafandi utan hjónabands. Yfirleitt eiga stúlkurnar ekki afturkvæmt. Allt niður í 11 ára gamlar stúlkur eru þannig neyddar út í barneignir, því vegna skorts á heilsugæslu uppgötva þær oft ekki að þær eru barnshafandi fyrr en of seint er að framkvæma fóstureyðingu. Söfnunin miðar að því að fá mánaðarleg framlög fyrir rekstri skólans og að festa kaup á húsnæði sem verður tímabundið heimili fyrir stúlkurnar á meðan þær eru að fóta sig í tilverunni," segir í tilkynningunni frá Enza.
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Sjá meira