Mistök að klippa á Steingrím 3. febrúar 2009 09:00 Óðinn viðurkennir að mistök hafi verið gerð þegar stjórnarskiptin voru látin víkja fyrir handboltanum og Steingrímur fékk ekki að klára ræðu sína í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. „
Það voru augljóslega gerð mistök, sem mér þykir miður og við biðjumst velvirðingar á. Það átti auðvitað ekki að rjúfa miðja ræðu, þótt handboltinn sé góður,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri hjá Ríkissjónvarpinu. Stjórnarskiptin voru sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu á sunnudaginn. Í miðri ræðu hins nýbakaða ráðherra Steingríms J. Sigfússonar var skyndilega klippt á útsendinguna til að koma úrslitaleik Frakka og Króata á HM í handbolta að. Eins og gefur að skilja voru upplýsingaþyrstir Íslendingar ekki á eitt sáttir við það, enda um stórtíðindi að ræða í íslenskri stjórnmálasögu. Óðinn segist bæði hafa fengið kvartanir frá fólki sem ætlaði að fylgjast með framvindu mála í pólitíkinni sem og óþreyjufullum handboltaáhugamönnum sem höfðu þegar misst af byrjun leiksins. Má því segja að Óðinn og starfsfólk hans hafi verið á milli tveggja elda. Hann tekur þó fram að stjórnmálamennirnir hafi verið seinir á vettvang og fyrir vikið hafi útsendingunni seinkað á kostnað handboltans. Í hálfleik úrslitaleiksins var ræða Steingríms síðan endursýnd til að bæta fyrir mistökin. „Það var farin dálítið úr því stemningin,“ viðurkennir Óðinn. - fb steingrímur j. sigfússon Steingrímur fékk ekki að klára ræðu sína í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira