Rúm 6% borgarbúa kusu 16. desember 2009 09:20 Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði fyrir kosninguna 2. desember. Hún er ánægð með þátttöku borgarbúa í verkefninu. Mynd/Valgarður Gíslason
Netkosningu um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar er lokið. Alls kusu 5876 Reykvíkingar í netkosningunni eða 6,2% kosningabærra sem voru allir Reykvíkingar á 16. aldursári og eldri, að fram kemur í tilkynningu. Borgarstjóri er ánægður með þátttökuna. Alls verður 100 milljónum króna varið til þeirra verkefna sem kosið var um og fjármunum skipt á milli hverfa í samræmi við fjölda íbúa. Verkefnin tóku mið af ábendingum íbúa, hverfaráða og íbúasamtaka, en flestar óskir og ábendingar sem Reykjavíkurborg berast snerta smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni í hverfum. „Það er mjög ánægjulegt að svo margir borgarbúar hafi sýnt áhuga á að taka þátt í þessu fyrsta tilraunaverkefni okkar af þessum toga þ.e. að kjósa á vefnum um forgangsröðun fjármuna,“ er haft eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, í tilkynningunni. Hanna Birna segir að það sé mikilvægt að virkja borgarbúa til þátttöku. Þannig fái borgaryfirvöld nauðsynleg skilaboð um vilja þeirra sem búa í hverfum borgarinnar. „Markmið kosningarinnar var annars vegar að glæða áhuga íbúanna á málefnum hverfanna og hins vegar að gera tilraun til að gefa þeim tækifæri til áhrifa. Bæði markmiðin tókust nokkuð vel. Hvað varðar fyrra markmiðið má segja að meiri fjöldi íbúa hafi tekið þátt í að taka bindandi ákvarðanir um forgangsröðun verkefna í sínum hverfum en nokkur dæmi eru til á Íslandi eða hátt í 6 þúsund manns,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sem veitti Reykjavíkurborg ráðgjöf vegna verkefnisins. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og Samgöngur.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira