Stjórn VR lýsir vantrausti á eigin varaformann 16. desember 2009 14:03 Kristinn Örn Jóhannesson er formaður VR.
Stjórn VR samþykkti tillögu um vantraust á Bjarka Steingrímsson sem varaformann stjórnar félagsins á fundi í hádeginu í dag. Ástæðurnar eru trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar. Ásta Rut Jónasdóttir var kjörin nýr varaformaður á fundinum. Að mati stjórnar tók steininn úr þegar Bjarki hélt ræðu á útifundi á Austurvelli þann 5. desember þar sem hann lítilsvirti ekki eingöngu störf eigin félags heldur verkalýðshreyfingarinnar í heild sinni, að fram kemur í tilkynningu frá stjórn VR. Þar segir að eftir kosningar til stjórnar VR í vor hafi stjórnin skipt með sér verkum og falið Bjarka að fara með embætti varaformanns. Formaður VR sé talsmaður félagsins út á við en í forföllum hans sinni varaformaðurinn því hlutverki. Málfrelsi tíðkist innan stjórnar VR og ákvarðanir séu teknar á lýðræðislegan hátt. Mikilvægt sé að stjórnarmenn tali ekki gegn ákvörðunum stjórnar, sérstaklega sé mikilvægt að forsvarsmenn stjórnarinnar séu samstíga. „Það hefur Bjarki ekki virt, að mati stjórnar. Hann hefur ítrekað, í nafni félagsins, talað gegn ákvörðunum stjórnar VR, bæði við fjölmiðla og annars staðar á opinberum vettvangi. Ummæli hans hafa iðulega komið formanni og stjórn í opna skjöldu. Þá hefur Bjarki dylgjað um meint leynimakk innan félagsins, farið með ósannindi og sakað samstjórnendur sína um blekkingar," segir í tilkynningunni. Stjórnin segir að í ræðu sinni á Austurvelli fyrr í þessum mánuði hafi Bjarki talað með óviðeigandi hætti sem varaformaður stærsta stéttarfélags landsins. „Hann sakaði félagið og verkalýðshreyfinguna alla um að ganga erinda stjórnmálaflokka og vinna vísvitandi gegn hagsmunum félagsmanna. Sú staðhæfing er fráleit og eingöngu til þess fallin að mynda gjá milli félags og félagsmanna á tímum þegar samstaða skiptir öllu máli. "
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira