Útkoman ræðst á morgun 16. desember 2009 05:45 mikið verk Forseti loftslagsráðstefnunnar hefur átt ófáa fundina til að tryggja að umræður sigli ekki í strand.fréttablaðið/kóp
Connie Hedegård, forseti loftslagsráðstefnunnar, þykir hafa haldið vel á spilum þegar hún náði samkomulagi um vinnuáætlun næstu daga. Afríkuríkin höfðu uppi mikla gagnrýni og Connie var sökuð um að draga taum iðnríkjanna. Hún fullvissaði þó alla um að ekkert yrði ákveðið fyrr en á föstudag og eru flestir sammála um að hún hafi staðið sig vel. Connie fór þó ekki í grafgötur með að hver dagur skipti máli. „Næstu 48 tímar ráða úrslitum,“ sagði hún á blaðamannafundi í hádeginu í gær. Víst er að það hefur aukið á áhyggjur þróunarríkjanna, en sum þeirra hafa svo fámennar sendinefndir að þau geta ekki tekið þátt í öllum þeim fundum sem haldnir eru hér í Bella Center. Þau leggja því ríka áherslu á að ekki verði samið um neitt fyrr en þjóðarleiðtogarnir mæta á svæðið. Þeir byrja að streyma að í dag og á föstudag má reikna með að hér verði 120 leiðtogar. Connie var spurð hvers vegna tíminn hafi ekki verið nýttur betr síðustu tvö árin, en þar voru línur lagðar fyrir ráðstefnuna árið 2007. Hún líkti stjórnmálamönnum í alþjóðlegum samningum við skólabörn sem nýttu alltaf frestinn til að skila ritgerð til fulls og fengju hann svo framlengdan. Skiluðu ekki fyrr en á allra, allra síðustu stundu. Þá mætti ekki gleyma því að Bandaríkin hefðu verið treg í taumi undir forystu fyrrum forseta. Með komu Baracks Obama í Hvíta húsið hefðu orðið breytingar þar á og því væri útlitið allt öðruvísi nú. Hún sagði menn þó fráleitt hafa setið auðum höndum síðustu tvö ár. „Hefði einhver sagt mér í Balí að eftir tvö ár myndu allir þessir þjóðarleiðtogar telja það svo mikilvægt að mæta hingað, hefði ég ekki trúað því.“
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira