Milljarður frá ríki til samtaka bænda 16. desember 2009 04:15 réttir Ríkið hefur með samningi, sem rennur út á næsta ári, falið Bændasamtökum Íslands að sinna ýmsum verkefnum.Fréttablaðið/Vilhelm
Bændasamtökin fá samkvæmt fjárlagafrumvarpi tæpan milljarð króna í tekjur frá ríkissjóði, annars vegar vegna samnings við ríkið og hins vegar vegna sjóða sem samtökin reka í umboði ríkisins og fá tekjur af gjöldum sem bændum er skylt að greiða samkvæmt lögum. Bændur greiða 1,2 prósenta búnaðargjald af veltu búvöruframleiðslu sinnar. Gjaldið rennur í Búnaðarsjóð sem Bændasamtök Íslands varðveita. Úr þeim sjóði rennur gjaldið eftir ákveðnum reglum til ýmissa samtaka landbúnaðarins; bæði Bændasamtakanna sjálfra, búnaðarsambanda og búgreinasamtaka, auk Bjargráðasjóðs. Fjárlagafrumvarp næsta árs áætlar að 320 milljónir innheimtist af búnaðargjaldi í Búnaðarsjóðinn. Það er sama fjárhæð og áætluð var á síðasta ári en talsvert hærri en 2008, þegar sjóðurinn fékk 277,4 milljónir króna til ráðstöfunar. Bændasamtökin annast líka rekstur Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Hann fær 148 milljóna króna ríkisframlag á fjárlögum 2010, fékk 158,9 milljónir í fjárlögum 2009 en 100,3 milljónir árið 2008. Sjóðurinn á að styðja búháttabreytingar og efla ný viðfangsefni í landbúnaði. Loks gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir að ríkið greiði bændasamtökunum 521,4 milljónir króna samkvæmt samningi um tiltekin verkefni sem ríkið felur Bændasamtökunum að sinna á sinn kostnað. Þetta eru m.a. ráðgjafaþjónusta og markaðsverkefni, sem hafa aukna sölu landbúnaðarafurða að markmiði. Í fjárlagafrumvarpinu segir að 521,4 milljóna króna útgjöld næsta árs séu 117,2 milljónum króna lægri að raungildi en framlag þessa árs. Meðal annars á að spara 70 milljónir í ráðgjafaþjónustu og 30 milljónir í þróunar- og markaðsverkefnum. Bændasamtökin fengu um 750 milljónir á þessu ári, samkvæmt samningum og ættu að fá 667,5 milljónir ef ekki kæmi til þessi skerðing. Í samtölum Fréttablaðsins við Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann landbúnaðarráðherra, og Eirík Blöndal, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, kom fram að viðræður um endurnýjun samningsins voru hafnar þegar hrunið varð á síðasta ári. Þær hafa síðan legið að mestu niðri. Eiríkur kveðst vonast til að viðræður hefjist fljótlega á ný og kveðst þess fullviss að nýr samningur verði gerður. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira