Lífeyrissjóðir létti Icesave-greiðslur 23. október 2009 05:00 Á fundi Viðskiptaráðs Í pallborði eru Frosti Ólafsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, og Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Í pontu er Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.Fréttablaðið/GVA
Draga mætti úr vaxtakostnaði ríkisins með aðkomu lífeyrissjóðanna að því að staðgreiða skuldbindingar vegna Icesave. Við þetta þyrftu skattar ekki að hækka jafnmikið og ella. Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs Íslands í gærmorgun um hlutverk lífeyrissjóðanna í endurreisninni. Steingrímur segir umræðuna halda áfram, en í henni sé mikilvægt að velta upp ýmsum hugmyndum. „Jafnvel þeim að rætt verði við lífeyrissjóðina um að lækka pínulítið Icesave-reikninginn fyrir fram.“ Slíka fjárfestingu segir hann jafnvel geta verið á álitlegum kjörum fyrir lífeyrissjóðina. Stjórnvöld hafa síðan í september átt í viðræðum við lífeyrissjóðina um mögulega aðkomu þeirra að margvíslegum verkefnum og segir Steingrímur þær vel á veg komnar. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, gagnrýndi þó á fundinum að þær hefðu ekki hafist fyrr, því samkvæmt stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins hefði þeim átt að vera lokið 1. september. Um áttatíu manns sóttu fund Viðskiptaráðs, en markmið hans var að ræða opinskátt og fordómalaust um hugmyndir sem fram hafa komið síðustu vikur og mánuði og snerta aðkomu sjóðanna að endurreisn efnahagslífsins. Steingrímur kvaðst til viðræðu um allar leiðir, svo fremi sem þær „hrófluðu ekki við grunntilveru lífeyrissjóðanna og gríðarmikilvægu hlutverki þeirra“. Steingrímur vék einnig orðum að hugmyndum um að skattleggja iðgjöld fremur en greiðslur úr lífeyrissjóðum. „Á komandi árum og áratugum verða tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga gegnum vaxandi útgreiðslur lífeyris stigvaxandi tekjustofn og gera þeim kleift að ráða við sínar skuldir og axla verkefni. Þess vegna væri það stór og býsna afdrifarík ákvörðun að hverfa frá því að eiga þessar tekjur í vændum,“ sagði hann. Í erindi Hrafns Magnússonar kom fram að lífeyrissjóðirnir sæju helst tækifæri í því að koma að fjármögnun einstakra verkefna, enda væri nú um mundir fátt um fína fjárfestingarkosti. Þá sagði hann aukna áhættu í því fólgna að lána ríkinu stórar fjárhæðir, en þar með væru fullmörg egg sjóðanna komin í sömu körfu. Þá mælti að hans mati margt á móti skattlagningu iðgjalda og ljóst er að hugmyndir um slíkt njóta ekki hljómgrunns innan sjóðanna.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira