Lokað var á Álftanes í bönkum og sjóðum 17. desember 2009 06:00 Kvöld á Álftanesi Um 2.500 manns búa á Álftanesi og deila þar með sér 7,4 milljarða króna skuldabyrði. Sé skuldunum deilt á þá 1.234 Álftnesinga sem kusu í síðustu bæjarstjórnarkosningum 2006 eru þær um sex milljónir á mann. Fréttablaðið/Valli
Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins Álftaness eru 495,3 prósent af heildartekjum árið 2009 og 626,2 prósent að frátöldum bókfærðum tekjum vegna sölu byggingarréttar. Þetta kemur fram í skýrslu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. „Sveitarfélagið Álftanes er komið í greiðsluþrot. Það getur ekki staðið við sínar skuldbindingar og hefur verið synjað um frekari lánafyrirgreiðslu hjá viðskiptabanka sínum,“ segir í helstu niðurstöðum skýrslunnar. „Beiðni sveitarfélagsins til Lánasjóðs sveitarfélaga um lán vegna lausafjárskorts hefur ekki skilað árangri og tilgreinir lánasjóðurinn að aðkoma sjóðsins að málinu verði í samvinnu við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga,“ er síðan bætt við. Eftirlitsnefndin segir hallann á rekstri sveitarfélagsins árið 2008 hafa verið 832 milljónir króna og að í ár sé gert ráð fyrir að hallinn verði 238,3 milljónir – en 568,6 milljónir ef frá eru taldar bókfærðar tekjur vegna sölu á byggingarrétti. Skuldir og skuldbindingar Álftaness eru um 7,4 milljarðar króna, að sögn eftirlitsnefndarinnar. Eins og haft var eftir Kristjáni L. Möller sveitarstjórnarráðherra í Fréttablaðinu í gær nema svokallaðar skuldbindingar utan efnahags tæplega þremur milljörðum, að mestu vegna langtímasamninga við Fasteign hf. sem leigir Álftnesingum sundlaug og íþróttamannvirki. „Sé miðað við sömu skatttekjur sveitarfélagsins árið 2010 og reiknað er með árið 2009 [1.174 milljónum] þurfa rekstrarútgjöld að minnka um tæplega 900 milljónir króna til að eiga fyrir öllum rekstri málaflokka og næsta árs afborgunum,“ segir eftirlitsnefndin sem upplýsir jafnframt að áætluð greiðslubyrði lána árið 2010 sé 626,3 milljónir króna, þar af samtals 430 milljóna kúlulán hjá Arion banka og Lánasjóði sveitarfélaga. „Þrátt fyrir 832 milljóna króna halla á rekstri sveitarfélagsins árið 2008 hefur sveitarfélagið ekki gripið til viðhlítandi rekstrarhagræðingaraðgerða til að koma rekstrinum í jafnvægi,“ segir í skýrslunni og útlitið er ekki málað björtum litum: „Þrátt fyrir að gripið verði nú þegar til verulegrar rekstrarhagræðingar, hækkunar fasteignaskatts og álagi á útsvar verði beitt er vandséð að Sveitarfélagið Álftanes geti orðið sjálfbært nema til komi verulegur utanaðkomandi stuðningur.“ Skýrslan hefur nú verið gerð aðgengileg á heimasíðu Álftaness. Í kvöld klukkan átta munu forystumenn sveitarfélagsins fara yfir stöðuna á íbúafundi í íþróttahúsinu.gar@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira