Ábending Ríkisendurskoðunar hunsuð 17. desember 2009 02:00 gUÐBJARTUR HANNESSON Fjáraukalög 2009 voru afgreidd í fyrrakvöld án þess að tekið væri tillit til ábendingar Ríkisendurskoðunar um að í lögin vantaði heimild til ríkisins til þess að afhenda kröfuhöfum Arion banka og Íslandsbanka.Fréttablaðið/GVA
Ríkisendurskoðun telur að ríkisstjórnin hefði þurft að afla sér lagaheimildar fyrir því að semja við kröfuhafa um yfirtöku þeirra á Arion banka og Íslandsbanka. Slíka heimild skorti. Ríkisendurskoðun vildi að úr þessu yrði bætt í fjáraukalögum, sem voru afgreidd í fyrrakvöld án þess að tekið væri tillit til þessara ábendinga Ríkisendurskoðunar. Að sögn Guðbjarts Hannessonar, formanns fjárlaganefndar, er ágreiningur um málið milli Ríkisendurskoðunar og fjármálaráðuneytisins. Ráðuneytið telur að ríkið geti ráðstafað bönkunum til kröfuhafa án sérstakrar heimildar. Guðbjartur segir að athugasemd Ríkisendurskoðunar hafi borist rétt áður en lokaatkvæðagreiðsla um fjáraukalög var að hefjast á Alþingi. Hann hafi ekki talið ástæðu til að fresta atkvæðagreiðslunni. Sest verði yfir málið fljótlega til að meta hvernig hægt er að bregðast við svo að yfirfærsla bankanna til kröfuhafa standist lögformlegar kröfur. Hugsanlega megi afla sérstaks samþykkis Alþingis fyrir áramót. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi sagði við Fréttablaðið að þar sem þingið veitti á sínum tíma lagaheimild fyrir því að ríkið yfirtæki bankana og fjármagnaði endurreisn þeirra þyrfti nýja lagaheimild til þess að færa bankana frá ríkinu og yfir til kröfuhafa. Hann segist telja að þessar athugasemdir hafi komist tímanlega til Alþingis þótt ekki hafi verið tekið tillit til þeirra við afgreiðslu fjáraukalaga. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði athugasemdir við það á Alþingi í gær að málið hefði verið afgreitt með þessum hætti og að fjárlaganefnd hefði ekki séð ábendingar Ríkisendurskoðunar fyrr en á fundi í gærmorgun þótt þær hefðu borist þinginu fyrir atkvæðagreiðsluna. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, svaraði Kristjáni Þór með því að fjármálaráðuneytið teldi að heimildin frá í fyrra hefði verið veitt til að fjármagna bankana og halda þeim á floti, en ekki til þess að ríkið keypti þá. Kröfuhafarnir hafi ekki verið að kaupa bankana úr ríkiseigu. Þeir hafi í raun aðeins verið að leysa til sín eigur sínar.peturg@frettabladid.is
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira