Vöruskipti á netinu það sem koma skal í kreppunni 23. febrúar 2009 04:00 Samlagid.is er hugarsmíð Axels Valdimars en þar getur fólk skipst á hinum og þessum hlutum og þjónustu.Fréttablaðið/GVA „
Þetta er vefsíða fyrir okkur hin, okkur sem urðum eftir og verðum að nota eitthvað annað en krónuna til að versla,“ segir Axel Valdimar Gunnlaugsson, stofnandi vefsíðunnnar samlagid.is, sem vakið hefur mikla athygli. Síðan er glæný, fór í loftið fyrir mánuði síðan, en hugmyndin kviknaði þegar allt fór fjandans til undir lok síðasta árs. „Þetta byrjaði bara sem grín en svo vatt þetta fljótlega upp á sig og í dag eru þúsund manns skráðir notendur,“ segir Axel en svo skemmtilega vill til að meirihluti notenda eru konur. Og alltaf bætast nýir meðlimir í hópinn, tuttugu til þrjátíu á hverjum degi. „Þetta byrjaði allt í miklu bríaríi, kannski er besta dæmið um það að þarna var flokkur sem hét þjónustustörf og þar hafði einn auglýst eftir seðlabankastjóra. Ég fjarlægði þá auglýsingu enda vildi ég ekki styggja sjálfstæðismenn.“ Hugmyndin hjá Axel er sú að menn geti skipt á hinum og þessum hlutum og þannig átt hálfgerð vöruskipti á netinu. „Þarna inni eru til að mynda iðnaðarmenn sem eru reiðubúnir til að vinna fyrir unna kjötvöru,“ segir Axel. Önnur auglýsing er frá einhverjum í fæðingarorlofi sem vill vinna sér inn smá aur. „Ég hef nægan tíma,“ skrifar umræddur aðili. Í þeirri þriðju er auglýst eftir einhverjum handlögnum sem getur gert við bílinn hans, tímareimin sé biluð. Axel segir að skömmu eftir að síðan fór í loftið hafi fulltrúar ríkisskattstjóra hringt og efast um lögmæti þjónustunnar. „Þetta er bara svona svipað og ef tveir menn hittast á Austurvelli og ákveða að eiga viðskipti. Landeigandinn verður þá ekki skattskyldur,“ útskýrir Axel. Axel starfar sem tæknilegur arkitekt hjá Símanum og sinnir þeirri vinnu á daginn. „Það er svona stjórnunarstarf, ég fæ síðan alla útrás sem ég þarf á síðunni,“ segir Axel og hlær. Hann upplýsir að enn eigi eftir að koma skemmtilegar viðbætur en þeir sem eru með Facebook geta meðal annars nýtt sér síðuna. „Ef einhver skrifar athugasemd þá fær hann hana senda með tölvupósti. Ég ætla að reyna að bæta þetta kerfi þannig að viðkomandi fái líka sms-skilaboð þegar einhver sýnir viðbrögð við auglýsingunni,“ útskýrir Axel en þess má geta að öll þjónusta er ókeypis, það eina sem fólk þarf að gera er að skrá sig sem notendur á síðuna. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira