Óvenju mikið af ballöðum 23. febrúar 2009 02:30 Svo virðist sem Íslendingar hafi gengið í takt með öðrum Evrópuþjóðum þegar við völdum ballöðu Óskars Páls og Jóhönnu Guðrúnar í Eurovision. Fréttablaðið/Anton
Búið er að draga saman lönd í undanþætti Eurovision í ár og verður Ísland á fyrra kvöldinu. Jóhanna Guðrún syngur Is It True að kvöldi þriðjudagsins 12. maí í Ólympísku íþróttahöllinni í Moskvu. Friðrik og Regína kepptu á fimmtudagskvöldi í fyrra. Átján flytjendur keppa við Jóhönnu Guðrúnu, en tíu efstu lögin komast í úrslitaþáttinn 16. maí. Nú er búið að velja 25 af 43 Eurovisionlögum ársins. Allt virðist vera á sínum stað, smástelpupoppið, þjóðlega poppið og ofurballöðurnar. Meðal þeirra sem keppa við Jóhönnu er söngkonan Susanne Georgi frá Andorra, söngkonan Hadise frá Tyrklandi og hljómsveitin Waldo‘s People frá Finnlandi, sem spilar popp með rappívafi. Af þeim lögum sem komin eru fram er ekkert sem gæti kallast „öðruvísi“ eða „flippað“. Í fyrra voru óvenju mörg „flippuð“ lög en engu þeirra gekk vel svo kannski eru menn brenndir á því. Ef einhverja ályktun má draga af lögunum sem komin eru fram er það helst að óvenju mikið er af ballöðum í ár. Is It True hefur fengið misjafna dóma hjá Euro-nördunum sem hanga á Esctoday-síðunni. „Mjög grípandi lag sem staldrar við í hausnum á manni. Fullt af góðum ballöðum í ár. Ef Ísland vinnur þá getur landið ekki haldið næstu keppni því þjóðin er gjaldþrota,“ skrifar Bretinn Jim Hegarty sem þykist með allt á hreinu. Annar Breti, „Nordic sheep“, skrifar: „Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta er íslenskt og ég elska allt sem er íslenskt, söngkonan er sæt og getur sungið, og lagið er eitt það besta í keppninni… en samt, ég fell í dá í hvert skipti sem ég heyri það. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa tilfinningum mínum þegar ég heyri lagið… Það er eins og að kýla í risastóran sykurpúða. Maður getur notað allan þann kraft sem maður vill í höggið en samt skemmir maður ekki neitt.“ drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira