Ólafur F. ryður Benna Ólsara út 23. janúar 2009 08:00 Í þættinum í kvöld verður enginn Benni Ólsari eins og til stóð en í hans stað kemur Ólafur F. Magnússon.fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er bara fyndið. Auddi var að hringja í mig og flauta þetta af. Þá var allt orðið vitlaust,“ segir Benjamín Þór Þorgrímsson sem betur er þekktur sem Benni Ólsari sem komið hefur við sögu í fréttum af handrukkunum. Hinir landsþekktu, dáðu og elskuðu grínarar Auddi og Sveppi byrja með glænýjan sjónvarpsþátt á Stöð 2 í kvöld en þeir hafa hugsað sér að taka beygju, henda sér inn í þjóðfélagsumræðuna miðja en þær fyrirætlanir hafa steytt á steinum. Þeir hafa verið að taka púlsinn á mótmælunum og voru búnir að finna einkar áhugaverðan viðmælanda, nefnilega Benna Ólsara, og ætluðu að ræða við hann um heima og geima – þjóðfélagsmálin. En þá kom babb í bátinn. Audda og Sveppa var ekki kunnugt um að fyrir dyrum stæðu málaferli Benna á hendur fyrirtækinu 365 vegna Kompássþáttar þar sem Benni kom við sögu. „Þetta var nú eiginlega eina viðtalið sem ég ætlaði að veita,“ segir Benni. „Ég hefði alveg verið til í að hitta þá og grína aðeins með þeim. En þeir vissu náttúrulega ekkert um þessa stefnu. Saklausir og skemmtilegir strákar sem eru að gera einhvern grínþátt.“ Sveppi kýs að tjá sig ekki um málið en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að sá gestur sem hleypur í skarðið fyrir Benna sé enginn annar en Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri.- jbg
Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Fleiri fréttir Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Sjá meira