Óska Geir góðs bata 23. janúar 2009 15:05 Eva Hauksdóttir: „Þegar þú galdrar ertu að senda mynd af ósk um bata og kærleika. Þetta er eitthvað sem ég get alveg mælt með fyrir hvern sem er. Allir geta sent óskir, sína eigin galdrastafi." „
Ég óska Geir innilega góðs bata því þótt ég sé pólitiskur andstæðingur hans þá finnst mér þetta skelfilegur sjúkdómur.'' segir Eva Hauksdóttir norn. „Þegar góður vinur minn fékk krabbamein safnaði ég lækningarúnum sem ég teiknaði upp í bók. Vinir og ættingjar skrifuðu svo kveðjur og óskir um góðan bata í bókina, sumir ortu kvæði eða teiknuðu sína eigin galdrastafi og við færðum honum bókina þegar hann lagðist inn á spítala. Þetta er dæmi um galdur því ég lít svo á að galdur sé í rauninni það að beina öllum ástríðum og vilja að ákveðinni ósk og staðfesta hana með tákni eða athöfn." „Galdrastafir eru táknmyndir af hugmyndum og óskum, og lækningarúnir eru t.d. samsettar úr táknum sem standa fyrir lækningartæki og lyf. Hjartað er einnig áberandi í lækningarúnum síðari alda en það táknar samhyggð og kærleika," segir Eva. „Þegar þú teiknar lækningarúnir ertu að teikna mynd af ósk um bata og kærleika. Þetta er eitthvað sem ég get alveg mælt með fyrir hvern sem er. Allir geta sent óskir, sína eigin galdrastafi. Þetta er náskylt bæninni að því leyti að bæði galdur og bæn byggja á þeirri hugmynd að óskir okkar hafi áhrif.'' „Að gefnu tilefni vil ég taka fram að fyrir jólin tók Nornabúðin upp dúkkur sem heita litlu kreppukarlarnir. Þetta eru galdrabrúður og þeim fylgja tveir prjónar, en þegar tveir prjónar eru notaðir er það hugsað til að fá útrás fyrir reiði og stinga í stinga í samvisku þeirra sem eiga í hlut, en ekki til að valda sjúkdómum. Það er ekki hægt að skaða neinn með galdrabrúðu einni og sér." „Galdur byggist meira á því sem fer fram í huga manns en brúðu eða galdrastaf og ég held að það hljóti að þurfa ofboðslegt hatur til að valda krabba með galdri. Ég hef ekki reynt það sjálf enda er það hroðalegasta sem ég gæti hugsað mér er að missa heilsuna og þess óska ég ekki nokkrum manni, þótt ég vilji losna við hann úr ráðherrastól" segir Eva að lokum.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Sjá meira