Innlent

Kveikt í vinnuskúrum í Keflavík í gær

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Kveikt var í tveimur vinnuskúrum á flugvallarsvæðinu í Keflavík á tólfta tímanum í gærkvöldi en slökkviliðinu tókst að slökkva eldana áður en þeir næðu frekari útbreiðslu.

Fyrst var kveikt í skúr á svonefndu Patterson-svæði og síðan á Vallarheiði og lagði talsverðan reyk frá honum. Engan sakaði en skemmdir urðu nokkrar. Brennuvargarnir eru ófundnir, en lögregla telur fullvíst af ummerkjum að sömu menn hafi verið að verkið á báðum stöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×