Vígði danska tónleikahöll 2. febrúar 2009 04:00 Dísa söng með danska tónlistarmanninum Mads Mouritz og skáldkonunni Hørslev í nýju höllinni. „
Þetta er æðislegt hús," segir söngkonan Bryndís Jakobsdóttir, eða Dísa, sem tók nýverið þátt í vígslu nýrrar tónleikahallar danska ríkisútvarpsins í Kaupmannahöfn. Söng hún fyrir framan um 1.500 gesti í 45 mínútur ásamt danska tónlistarmanninum Mads Mouritz og skáldkonunni Hørslev. Var þetta fyrsta tónlistaratriðið á dagskrá og því má segja að Dísa hafi vígt þessa glæsilegu höll með hljómfagurri rödd sinni. „Ég rétt náði út af sviðinu því ég skalf svo í hnjánum. Þetta var rosalega skemmtilegt og það er líka gaman að gera önnur verkefni en bara mitt," segir Dísa og á þar við samstarfið við Mads. „Hann er að gera nýja plötu og bað mig um að syngja með sér." Höllin tekur 1.800 manns í sæti og hönnuður var franski arkitektinn Jean Nouvel. Í henni er að finna glæsilegt hollenskt orgel með sex hundruð pípum auk þess sem sætin eiga að laga sig að líkamanum og þykja sérlega þægileg. Kostuðu herlegheitin þrjá milljarða danskra króna, eða um 60 milljarða. Dísa flutti til Danmerkur síðasta haust þar sem hún hefur einbeitt sér að lagasmíðum. „Ég hef verið að semja mikið með fólki og tók þátt í verkefni þar sem fimm manns voru saman í hóp. Svo spiluðum við á þremur stöðum í Danmörku," segir hún. „Svo er ég að æfa mig að semja og aðallega hlusta á nýja tónlist." Þrátt fyrir að hafa það ágætt í Danmörku saknar hún þess að geta ekki verið heima á Íslandi. „Mér finnst leiðinlegt að ég sé ekkert heima á meðan þessar hörmungar eru og að geta ekkert gert hér. En maður fer með bænir," segir hún. Dísa gaf í maí í fyrra út sína fyrstu plötu sem hlaut mjög góðar viðtökur gagnrýnenda. Spurð hvort ný plata sé á leiðinni segir hún að það verði bara að koma í ljós. „Ég er á fullu að æfa mig að semja. Ef ég verð svo heppin að lög koma þá auðvitað tek ég það upp og gef út." Hún hefur einnig sungið á nokkrum tónlistarhátíðum að undanförnu, þar á meðal á Eurosonic í Hollandi, og hefur alls staðar fengið mjög góð viðbrögð. Eru allir sammála um að hún eigi framtíðina fyrir sér í tónlistarbransanum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Brennivín hlaut gullverðlaun Matur Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira