Lífið

Stólasöfnun í fokheldri kirkju

Á annað hundrað börn verða fermd í fokheldri Lindakirkju frá 21. mars til 4.apríl og stendur nú yfir stólasöfnun svo hægt verði að ferma með góðu móti.
Fréttablaðið/GVA
Á annað hundrað börn verða fermd í fokheldri Lindakirkju frá 21. mars til 4.apríl og stendur nú yfir stólasöfnun svo hægt verði að ferma með góðu móti. Fréttablaðið/GVA

„Kirkjuskipið er fokhelt með flotuðu gólfi, en er annars steingrátt og hrátt, svona 2009 „lúkkið,“ segir Guðni Már Harðarson sóknarprestur í Lindakirkju. Þar munu fara fram sex fermingar við óvenjulegar aðstæður á næstunni, en ákveðið hefur verið í samráði við foreldra að ferma á annað hundrað börn í kirkjunni frá 21. mars til 4.apríl, þrátt fyrir að hún sé enn fokheld.

„Það er merkilegt hvernig hugarfar allra er í ljósi ástandsins. Þetta hefði kannski verið óhugsandi fyrir tveimur árum, en nú taka þessu allir með opnum huga. Það má segja að það ríki svona sveitastemning í þessari nýjustu sókn Kópavogs en allir eru mjög ánægðir með framtakið og vilja koma, raða upp og þrífa stóla og kirkjuskip. Margir hafa líka nefnt hvað það sé gaman að vera fyrst til að fermast í kirkjunni og geta sagt barnabörnum sínum frá því í framtíðinni hvernig aðstæður voru í kirkjunni fyrsta árið sem fermt var,“ útskýrir Guðni.

„Við höfum verið að viða að okkur stólum úr mörgum áttum og erum komin með um 250 stóla af ýmsum gerðum, en vantar um 160 stóla í viðbót til að hægt sé að ferma með góðu móti. Þeir sem geta lagt til stóla er bent á að hafa samband við Lindasókn, en allar nánari upplýsingar er að finna á lindakirkja.is.“ -ag






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.