Tólf mánaða fangelsi fyrir hnífsstungu 22. júní 2009 13:22 Héraðsdómur Reykjavíkur
Tuttugu og eins árs gamall karlmaður, Frans Friðriksson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í desember á síðata ári, þar af eru 9 mánuðir skilorðsbundnir. Frans var dæmdur fyrir að stinga mann á Hverfisgötu í Reykjavík og skera annan. Var hann ákærður fyrir tilraun til manndráps en til vara sérstaklega hættulega likamsárás. Hann var semsagt sýknaður af tilraun til manndráps en dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Stakk hann fyrrnefnda manninn með hnífi í vinstra brjósthol, með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. Þá skar hann þann síðarnefnda á vinstri hendi er hann reyndi að forða félaga sínum frá atlögunni. Við það hlaut hann opið sár á öðrum hluta úlnliðs og handar. Fyrir dómi sagðist Frans hafa lent í útistöðum við piltana á Hverfisbarnum fyrr um nóttina en þessir sömu menn hafi lamið hann fyrir utan Hlöllabáta árið 2007. Sá sem fyrir árásinni varð sagði það hinsvegar ekki rétt, enda hefði hann aldrei hitt Frans áður. Eftir stympingarnar á Hverfisbarnum hafi hann hlaupið upp í bíl sinn og ætlað að aka á brott. Sagðist hann hafa ekið af stað en eftir smástund hafi hann stansað og farið að hugsa með sér að hann gæti ekki verið á endalausum flótta undan mönnunum sem hann hefði ekkert gert. „Hann kvaðst því hafa snúið við og ekið fram hjá Hverfisbarnum og beðið í örfáar mínútur. Þegar ákærði sá 5 til 6 menn koma út af staðnum ók hann í áttina að þeim, skrúfaði niður rúðuna og spurði þá um nöfn og hvað hann hefði gert þeim. Við það var eins og fjandinn yrði laus, eins og ákærði orðaði það....„ Sá sam hann stakk hafi verið kominn hálfur inn í bifreiðina og félagi hans hefði staðið fyrir aftan hann og verið að slá til sín og kýla sig eins og hinir tveir. „Hann kvaðst ekki hafa slegið til baka og ekki reynt að skrúfa upp rúðurnar. Ákærði kvaðst hafa grúft sig niður og þá séð opinn hníf milli sætanna og teygt sig í hann, en ætlun hans hafi verið að hóta með honum í átt að glugganum....„ Þar var sá sem hann stakk en hann sagðist einungis hafa ætla að hóta honum með hnífnum en ekki meiða neinn. „Ákærði kvaðst hafa lyft hnífnum upp og sveiflað honum einu sinni og við fyrstu mótspyrnu kvaðst hann hafa gefið eftir og ekið á brott. Hann kvaðst hafa gert sér grein fyrir að hnífurinn stöðvaðist á einhverju og hefði kannski skilið eftir sig smásár, eins og ákærði orðaði það." Frans var því dæmdur í 12 mánaða fangelsi eins og fyrr segir, en fresta skal fullnustu 9 mánaða og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum 2 árum frá birtingu dómsins. Þá var hann einnig dæmdur til þess að greiða öðru fórnarlambinu 500.000 krónur í skaðabætur og hinum piltinum 80.000 krónur.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira