Innlent

Mótmælendur handteknir við lögreglustöðina

Tveir voru handteknir fyrir utan lögreglustöðina eftir að þeir reyndu að koma í veg fyrir að lögreglumenn gætu lokað hliði að porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötuna.

Samkvæmt varðstjóra veittist hópurinn í kjölfarið að lögreglumönnunum og urðu átök þeirra á milli.

Um var að ræða 30 manna hóp sem beið eftir þeim fimm sem voru handteknir vegna mótmælanna í dag.

Að sögn varðstjóra fækkað nokkuð í hópnum fyrir utan lögreglustöðina eftir handtökuna.

Hann segist ekki búast við því að mótmælendurnir verði látnir gista fangageymslur, en verið er að taka skýrslur af þeim, og slíkt tekur tíma að sögn varðstjóra.

Hann segir annars daginn hafa verið erilsaman og það hafi ekki verið á það bætandi í kvöld að takast á við mótmælendur fyrir utan lögreglustöðina.

Hann segist gera ráð fyrir að hópurinn yfirgefi svæðið þegar búið er að láta hina handteknu lausa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×