AGS kom hvergi nærri ákvörðuninni Gunnar Örn Jónsson skrifar 4. júní 2009 13:06 Frá fréttamannafundinum. Mynd/Anton
Arnór Sighvatsson, aðstoðar Seðlabankastjóri, sagði á fréttamannafundi í dag að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi ekki komið nálægt ákvörðun Seðlabankans um 1% lækkun stýrivaxta, úr 13% í 12%. Mikill þrýstingur hefur verið frá atvinnulífinu á að lækka vexti verulega. Aðspurðir um lága stýrivaxtalækkun og orsakir hennar fyrir almenning og fyrirtæki í landinu sögðu þeir, Svein Harald Oygard Seðlabankastjóri og Arnór, að mest áhersla væri lögð á stöðugleika íslensku krónunnar. „Við erum að leita að bestu lausninni og þurfum að hugsa til langs tíma," sagði Svein Harald Oygard. Arnór sagði að stýrivaxtaákvörðunin hafi ekki bein áhrif á vaxtakostnað ríkisins vegna jöklabréfa líkt og Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á í samtali við Vísi fyrr í morgun. Þeir Svein Harald og Arnór, lýstu yfir vonbrigðum sínum með 1,1% hækkun verðbólgunnar í maí mánuði en tólf mánaða verðbólga mælist nú 11,6%. Þrátt fyrir það telja þeir að 2,5% verðbólgumarkmið bankans muni nást í byrjun næsta árs, meðal annars sökum þess að lækkun fasteignaverðs eigi enn frekar eftir að draga úr verðbólgunni. Að lokum benti Arnór á alvarleika gjaldeyrishaftanna sem væri margþættur og nefndi mikinn hvata á að fara í kringum höftin. „Við þurfum að byggja upp traust og með þessum aðgerðum teljum við að það muni aukast. Það er mikill skaði af höftunum og sökum þeirra er erfitt að afla fjár til arðbærra framkvæmda, auk þess brjótum við á fjöldamörgun alþjóðasamningum með slíkum höftum og þar af leiðandi er nauðsynlegt að hverfa frá þeim sem fyrst," en Seðlabankinn telur líklegt að afnám haftanna hefjist seint á þessu ári. Margir vilja meina að með afnámi gjaldeyrishafta muni erlendir krónubréfaeigendur hverfa úr landinu með tilheyrandi lækkun gengis krónunnar sem gæti mjög líklega aukið verðbólgu á nýjan leik.
Tengdar fréttir Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert. 4. júní 2009 11:19 Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00 Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39 Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira
Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert. 4. júní 2009 11:19
Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00
Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. 4. júní 2009 09:39
Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25