Jólaplönin í háaloft hjá Madonnu og Guy 20. desember 2008 05:15 Guy er mikill jólakarl og vill hafa börnin hjá sér á jóladag. Hann vill hins vegar ekki sofa undir sama þaki og eiginkonan fyrrverandi.
Hjónakornin fyrrverandi, Ma-donna og Guy Ritchie, höfðu tilkynnt börnum sínum að þau hygðust halda jólin saman. Svona rétt til að smáfólkið fengi eitthvað fyrir sinn snúð eftir að hafa upplifað erfiðan skilnað. Nú er það skipulag í lausu lofti eftir að enski leikstjórinn neitaði Madonnu um að gista á gamla sveitasetrinu þeirra í Wilt-skíri. The Sun greinir frá málinu og segir að Guy hafi óttast að of margar minningar frá hveitibrauðsdögunum myndu rifjast upp í kjölfarið. Blaðið hefur eftir heimildarmanni sínum að Guy sé mjög mikið í mun að hafa börnin hjá sér yfir hátíðarnar. Madonna og Guy eiga soninn Rocco saman auk þess sem þau ættleiddu David Banda. Lourdes, dóttir Madonnu af fyrra sambandi, lítur jafnframt á Guy sem pabba sinn. „Guy þráir ekkert heitar en að eyða jóladeginum með krökkunum og er reiðubúinn til að gera nánast hvað sem er. Hann vill þó ekki eyða nóttinni undir sama þaki og Madonna, það myndi kalla fram sárar minningar,“ segir heimildarmaðurinn við The Sun. Að sögn blaðsins eru því öll jólaplön í uppnámi en Guy mun hafa boðist til að fljúga til New York. Madonnu ku ekki hafa fallist á það og því eru hin gleðilegu jól nú í uppnámi hjá stjörnufjölskyldunni.
Mest lesið Útför Megasar Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira