Fjármagnseigendur greiði skatt eins og launþegar 20. desember 2008 14:55 Steingrímur J. Sigfússon.
Samtals höfðu 384 framteljendur meira en 10 milljónir í fjármagnstekjur á árinu 2007 en engar eða óverulegar launatekjur. Um er að ræða 120 einstaklinga en 264 hjón. Vinstri grænir hyggjast leggja fram frumvarp að nýju, þess efnis að þessum einstaklingum verði skylt að reikna sér endurgjald þannig að þeir greiði tekjuskatt og útsvar eins og venjulegir launþegar. „Það er hér hópur, býsna fjölmennur, sem telur litlar eða engar launatekjur fram en hefur umtalsverðar fjármagnstekjur. Afleiðingar þess er að það fólk borgar engan tekjuskatt," sagði Steingrímur J. Sigfússon þegar að hann, ásamt Katrínu Jakobsdóttur, kynnti áherslur Vinstri grænna í skatta- og ríkisfjármálum í gær. „Það borgar ekkert útsvar. Það borgar ekki einu sinni nefskatt í framkvæmdasjóð aldraðra, af því að það telst ekki hafa laun. Samt er þarna all fjölmennur hópur með fjármagnstekjur allt upp í 10, eða 20 eða jafnvel 40 milljónir á ári," bætti Steingrímur við. Hann telur eðlilegt að þetta fólk reikni sér hóflegt endurgjald eins og að það væri í vinnu hjá sjálfu sér við að ávaxta sitt eigið fé. Steingrímur benti á að bændur séu skyldaðir til að reikna sér slíkt endurgjald jafnvel þó að rekstur búsins gangi illa. Hið sama gildi um fólk í sjálfstæðum atvinnurekstri. Steingrímur benti á að um væri að ræða mikið réttlætismál því að fjármagnseigendur þæðu margvíslega þjónustu, bæði á vegum sveitarfélaga og ríkisins, án þess að greiða fyrir það eins og venjulegir launþegar.
Mest lesið Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Erlent Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Erlent Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Innlent Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn Innlent Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Innlent Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Innlent Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Innlent Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Innlent Fleiri fréttir Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Sjaldgæf afsögn þingmanns og leikskóla lokað að óbreyttu Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Þingið kallar áfram eftir hugmyndum frá almenningi Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Yfir 350 milljónir í kostnað vegna starfslokasamninga hjá ríkisstofnunum Segir af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa Andstæðan við lóðabrask Taki ásökunum alvarlega og skipi Signýju til bráðabirgða Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Dómari skapað hættulegt fordæmi fyrir ofbeldismenn Fjöldi kynferðisbrota í fyrra heldur yfir meðaltali Borgin segir upp leigusamningi og 54 barna leikskóla að óbreyttu lokað Finnur vill oddvitasæti VG í Reykjavík og bjóða fram með öðrum flokkum Ólga á norðurslóðum, Eyjagöng og nýr íþróttaálfur Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Kallar eftir upplýsingum um kínverska strætisvagna á Íslandi Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Lá við árekstri flugvélar og „kústa“ vegna gleymsku flugumferðarstjóra Sendiherraefnið biðst afsökunar Sjá meira