Lífið

Fóstbræður teknir út af Youtube

Vinsælir. Fóstbræðra-sketstar voru vinsælir meðal íslenskra notenda Youtube en þeir eru nú farnir.
Vinsælir. Fóstbræðra-sketstar voru vinsælir meðal íslenskra notenda Youtube en þeir eru nú farnir.

Aðdáendur Fóstbræðra uppgötvuðu sér til mikillar skelfingar að búið var að taka út allt efni sjónvarpsþáttanna af hinni vinsælu vefsíðu Youtube. Fyrir ofan myndböndin stendur skýrum stöfum: „This video is no longer available due to a copyright claim by SMAIS," eða „þetta myndband er ekki lengur til vegna kröfu af hálfu Smáís".

Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að þetta hefði verið gert í gærmorgun. „Við höfum yfirleitt látið svona sketsa í friði og litið á það sem kynningarefni en þarna var þetta orðið einum of mikið af hinu góða því fólk gat nálgast heilu og hálfu þættina í gegnum vefsvæðið," segir Snæbjörn en um var að ræða í kringum 140 sketsa úr þessum vinsælu grínþáttum sem tugþúsundir höfðu nálgast á undanförnum árum.

Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, var mjög afdráttarlaus í svörum. „Við látum fjarlægja allt réttindabundið efni, við höfum verið að vinna í þessu allt árið," segir Pálmi og staðfestir að brot úr Dagvaktinni og Næturvaktinni fari sömu leið. Notendur Youtube hafa getað séð glefsur úr þáttunum inni á vefsvæðinu. „Það að réttindavarið efni sé sett á netið ólöglega dregur úr DVD-sölu sem bitnar ekkert síður á leikurum, leikstjórum og öðrum aðstandendum en okkur."

Sjónvarpsstöðin ætlar þó að nýta sér Youtube-tæknina og koma á fót vefsvæði Stöðvar 2 inni á Youtube þar sem notendur geta nálgast valið efni og kynningarmyndbrot úr væntanlegum og gömlum þáttum stöðvarinnar.- fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.