Lífið

Ríkir Rússar rífa út dýrar merkjavörur

Merkjavörur vinsælar. Viðskiptavinir Sævars Karls eru að mestu leyti ríkir Rússar og Norðmenn en þeim þykir lítið tiltökumál að punga út hundruðum þúsunda fyrir merkjavöru.
Merkjavörur vinsælar. Viðskiptavinir Sævars Karls eru að mestu leyti ríkir Rússar og Norðmenn en þeim þykir lítið tiltökumál að punga út hundruðum þúsunda fyrir merkjavöru.

„Það gerðist bara hérna á laugardaginn að einhver ríkur Rússi gekk út með pelsa og jakkaföt fyrir hátt í milljón," segir Páll Kolbeinsson, einn eigenda tískuvöruverslunarinnar Sævar Karl í Bankastræti. Svo virðist að með falli krónunnar hafi skapast markaður fyrir vel stætt fólk að utan að koma hingað og kaupa sér dýr föt og annan lúxusvarning. Armani-jakkaföt og aðrar munaðarvörur sem þjóð í kreppu lætur sig bara dreyma um þessa dagana er pakkað niður í ferðatöskur og rata á fataslár erlendra auðmanna.

Páll viðurkennir að hann hefði fyrirfram gert ráð fyrir því að þegar efnahagslægðin tæki öll völd myndi verslun með dýrar merkjavörur verða nánast sjálfhætt. Sú hefur ekki reynst raunin. Því moldríkir Rússar og Norðmenn rífa merkjavörurnar út og kaupa sér smekkleg jakkaföt fyrir hátt í milljón í hvert skipti. Heilu rárnar séu stundum bara rifnar út. „Þessir tveir hópar eru langfyrirferðarmestir en Danir hafa líka verið duglegir," segir Páll.

Svava Johansen, framkvæmdastjóri NTC, hafði sömu sögu að segja. Útlendingar, þá sérstaklega Norðmenn og Rússar, hafi farið hamförum í kaupum á dýrum merkjavörum skömmu eftir hrun. Eitthvað sé þó að draga úr því núna. „Í þeirra augum hefur merkjavaran náttúrlega bara verið á hálfvirði. Þetta var alveg rosalega mikið í byrjun en það hefur aðeins hægt á því," segir Svava og minnist þess að einu sinni hafi einn einstaklingur keypt föt fyrir vel á aðra milljón. Verslunarstjóri Hugo Boss vildi ekkert tjá sig um þetta þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. - fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.