Opnunarhátíð Ólympíuleikanna hafin 8. ágúst 2008 12:39 Kínverjar hafa ekkert sparað til þess að hafa hátíðina sem glæsilegasta. MYND/AFP
Setningarathöfn Ólympíuleikanna í Peking hófst nú í hádeginu. Þjóðarleiðtogar stórveldanna og önnur fyrirmenni hafa komið sér fyrir í heiðursstúkunum. Setningarathöfnin verður með því glæsilegasta sem sést hefur á þessu sviði, en hún hófst á slaginu klukkan átta mínútur yfir átta, á áttunda degi, áttunda mánaðar, áttunda árs nýrrar aldar, það er að segja klukkan átta mínútur yfir tólf að íslenskum tíma.Það er ekki tilviljun að nákvæmlega þessi tími er valinn fyrir setningu leikanna, því talan átta hefur margháttaða táknræna þýðingu í kínverskri menningu. Orðið sjálft hljómar svipað og heppni eða velgengni og hvort tveggja hugnast Kínverjum. En svo eru hin ódauðlegu átta kjarninn í kínverskri goðafræði - átta ódauðlegir andar hafa afl til að ákvarða yfir lífi og dauða, einskonar alvaldur guð í guðleysi búddismans. En það er hið veraldlega vald sem skiptir máli í dag.Bush var glaðbeittur þegar hann mætti á áhorfendapallana.MYND/AFPHu Jintao, forseti Kína, hefur verið önnum kafinn undanfarna daga að taka á móti þjóðhöfðingjum og fyrirmennum víðsvegar að, Bush Bandaríkjaforseta, Pútín fyrrverandi Rússlandsforseta og nú forsætisráðherra, Sarkozy Frakklandsforseta, Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, Fukuda forsætisráðherra Japans, og fleiri og fleiri. Öllu þessu fólki var boðið í mat í Alþýðuhöllinni í Beijing í gærkvöld og þar skipta réttirnir yfirleitt mörgum tugum. Stjórnendur leikanna hafa lagt nótt við dag að undanförnu til að gera leikana eins glæsilega og mögulegt er.Fjöldi erlendra ferðamanna er í borginni til að fylgjast með þessari mestu íþróttaveislu heims, sem mun tröllríða sjónvarpsútsetningum um víða veröld næstu tvær vikurnar. Þúsundir á þúsundir ofan streymdu inn í nýja Ólympíuleikvanginn í allan morgun - eða allan dag að kínverskum tíma; þeir eru átta tímum á undan okkur hér. Reiknað var með rúmlega 90 þúsund áhorfendum við setningarathöfnina.Og öryggisgæsla er í hámarki, eins og við er að búast. Rúmlega 100 þúsund her- og lögreglumenn standa vaktina og eiga að sjá til þess að ekkert óvænt gerist. Kínverjar vilja ekki að sagan frá Atlanta í Bandaríkjunum endurtaki sig en þar var gerð sprengjuárás á leikana, eins og menn muna.Og veðrið í Beijing er ágætt en mistur í lofti og mengun í andrúmslofti miklu meiri en talið er hollt fólki.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira