Erlent

Úkraína íhugar aðstoð frá IMF

Úkraínumenn íhuga nú hvort þeir eigi að sækjast eftir 3-14 milljarða dollara láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til þess að takast á við þá erfiðleika sem blasa við vegna fjármálakreppunnar í heiminum.

Ráðamenn segja hins vegar að sjóðurinn setji þau skilyrði að ekki verði gengið til þingkosninga eins og stefnt er að. Óttast er að bæði ríkisstjórnin og fjármálafyrirtæki landsins muni eiga erfitt með að endurfjármagna sig í kreppunni og þá horfa landsmenn fram á þriðju þingkosningarnar á jafnmörgum árum í landinu.

Júlía Tymosjenko, forsætisráðherra Úkraínu, sagði á blaðamannafundi í dag að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefðu komið til landsins í gær og rætt um mögulega aðstoð. Hins vegar væri farið fram á það að kosningum yrði frestað. Talsmenn sjóðsins hafa ekki viljað tjá sig um þessi orð.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×