Óbirtar Glitnisauglýsingar með Frímanni Breki Logason skrifar 21. nóvember 2008 13:20 Frímann Gunnarsson býður upp á fjármálaráðgjöf í óbirtum auglýsingum Glitnis.
Ragnar Hansson leikstjóri framleiddi átta sjónvarpsauglýsingar með lífskúnstnernum Frímanni Gunnarssyni fyrir Glitni. Á sama tíma og auglýsingarnar voru tilbúnar tók ríkið hinsvegar bankann yfir og flestir þekkja framhaldið. Auglýsingarnar hafa enn ekki verið birtar en Ragnar telur ekki útilokað að þær fari í loftið. Um er að ræða fjármálaráðgjöf Glitnis með hinum eina sanna Frímanni Gunnarssyni. „Ég veit ekkert hvort þær verði birtar eða ekki, þær eru allavega tilbúnar en þetta hafa verið skrýtnir tímar," segir Ragnar sem einnig leikstýrði gamanþáttunum Sigtinu með Frímanni Gunnarssyni. „Þetta er svona fjármálaráðgjöf með léttum húmor. Við gerðum auglýsingar með honum fyrir Reykjavíkurmaraþonið í fyrra og þessar eru svipaðar. Þetta eru frábærar auglýsingar og það er leiðinlegt ef þær fara ekki í birtingu. Ég skil þá samt mjög vel," segir Ragnar. Hann segir auglýsingarnar ekkert grófari en auglýsingarnar með Páli Óskari sem Byr hefur verið að keyra undanfarið. „Frímann er bara meiri fáviti." „Við munum birta þessar auglýsingar þegar og ef við teljum tímann vera réttan til þess enda er efnið gott," segir Már Másson upplýsingafulltrúi Glitnis. „Samstarfið við Frímann var í senn skemmtilegt og lærdómsríkt. Hann hefur, eins og allir vita, afar næmt listamannsauga og er mjög kröfuharður á sjálfan sig. Þetta samstarf markaðist óneitanlega af því. En útkoman er skemmtileg enda er Frímann mikill fagmaður sem lætur sér fátt óviðkomandi," segir Már. Ragnar segir að annars sé lítið að frétta af Frímanni og engin plön séu um að framleiða fleiri þætti með honum. Hann segir þó hópinn sem staðið hefur á bak við Frímann vera með annað verkefni í burðarliðnum. „Það tengist samt Frímanni ekki neitt."
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira