Lífið

Grænt hlaðborð hjá Sollu á aðfangadag

Sólveig Eiríksdóttir.
Sólveig Eiríksdóttir.

„Á aðfangadag þá er ég með grænt hlaðborð," svarar Sólveig Eiríksdóttir aðspurð hvað hún ætlar að hafa á boðstólnum á aðfangadagskvöld.

„Hlaðborðið saman stendur meðal annars af sérstaklega góðu salati með allskonar grænmeti, granateplum, marineruðu brokkolí og fleiru."

„Ég bý til heimsins besta kartöflusalat en það hefur verið á borðum síðan ég man eftir mér og þar sem ég er með foreldra mína í mat þá er komið að mér að búa það til. Þetta er eftir uppskrift frá Gunnlaugi heitnum Þórðarsyni, pabba Tinnu og Hrafns, en hann lét fylgja með að best væri að nota baðkarið sem bala til að blanda salatið í, svo gott væri það og það yrði að vera nóg."

Eiginmaðurinn hjálpar til

„Í desert býr maðurinn minn til Tiramisú og ég bý til uppáhalds súkkulaðikökuna mína sem er hráfæðikaka sem slær öllu öðru út," segir Sólveig.

Málningaspjöld sem má sulla á

„Uppskriftabókin mín, 49 himneskar uppskriftir, átti upphaflega að koma út fyrir jólin í fyrra, það var einhver pikkles svo það komu bara um 1000 stykki sem hurfu strax," segir Sólveig þegar talið berst að bókinni hennar.

„Það kom ekki nýtt upplag fyrr en líða tók á árið og nú er hún aftur til sölu og ég er ótrúlega ánægð með þessa bók. Hún er blanda af góðum grænmetisréttum og hráfæðisréttum, drykkjum og desertum, allt mjög einfalt."

„Ég ákvað að setja þetta upp eins og málningaspjöld. Það er mjög auðvelt að nota hana í eldhúsinu og hún er prentuð á pappír sem hægt er að strjúka af ef eitthvað sullast á," segir Sólveig.

Hér má finna fjölda uppskrifta Sollu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.